Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

SÍM auglýsir eftir umsóknum frá félagsmönnum um að halda sýningu í SÍM-salnum

$
0
0

Kæru félagsmenn,

SÍM auglýsir eftir umsóknum frá félagsmönnum um að halda sýningu í SÍM-salnum, Hafnarstræti 16. Tímabilið sem um ræður er janúar – nóvember 2018.

Samsýning félagsmanna, Kanill, verður eins og áður haldin í desember.

Í SÍM eru yfir 800 meðlimir og gaman er að sjá í salnum þverskurð af þeim fjölbreytta hópi sem félagsið samanstendur af. Því viljum við hvetja unga sem aldna til að sækja um og með sem fjölbreyttustum verkefnum, t.d. stendur ekkert í vegi fyrir því að listamenn taki sig saman og skipuleggi samsýningu.

Sjá upplýsingar um SÍM salinn: http://sim.is/um-sim/sim-salurinn/

Félagsmenn eru hvattir til þess að senda inn umsókn um sýningarhald, að hámarki eitt A4 blað, 3-5 myndir af verkum og ósk um sýningartíma. Umsóknir berist í tölvupósti til: sim@sim.is, en frestur til að skil inn umsóknum er til:  20. september 2017.

Prentað verður út eitt boðskort með öllum þeim sýningunum sem ákveðnar verða allt árið 2018.

Sýningarnefnd mun fara yfir umsóknir og munu svör berast viku eftir lok umsóknarfrests.

The post SÍM auglýsir eftir umsóknum frá félagsmönnum um að halda sýningu í SÍM-salnum appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356