The post Sýningaropnun í Anarkíu appeared first on sím.
Sýningaropnun í Anarkíu
Opið hús
New exhibition at Veður og Vindur
Kathy Clark
Hverfisgata 37
Betra Veður-Better Weather Window Gallery
Laugavegur 41
101 RVK
Icelandwindandweather.is
betterweather.is
The post New exhibition at Veður og Vindur appeared first on sím.
Recollection – Theresa Himmer
Recollection – Theresa Himmer
Miðvikudaginn 4. maí var opnuð í Gallerí Gróttu sýning á verkum listamannsins Theresu Himmer. Um er að ræða nýja verkaheild sem samanstendur af ritverki, sem ber sama heiti og sýningin, og tveimur ljósmyndaseríum sem tengjast innbyrðis. Saman mynda þessir þrír hlutar verksins eins konar ritgerð um ferðalag, eða tilraun, til að íhuga rýmisþætti minninga þar sem arkitektónískt rými og myndrými mætast. Í aðferðum tengdum því að mætast, deila, skilja að og gleyma finna verkin jafnvægi á milli tilrauna með strúktúr og ljóðrænnar endurspeglunar.
Verkin byggja á rannsóknarferð listamannsins til Búlgaríu vorið 2015, í boði Ruse Art Gallery.
Ritverkið Recollection er unnið í samvinnu við Arnar Frey Guðmundsson, grafískan hönnuð og með stuðningi frá Statens Kunstfond, Danmörku.
Theresa á að baki myndlistarnám frá Whitney Museum og School of Visual Arts í New York og arkitektanám frá arkitektaskólanum í Árósum. Verk hennar hafa verið sýnd víða á Íslandi og á alþjóðlegum vettvangi, m.a. á Listasafni Reykjavíkur, Hafnarborg, Westfälische Kunstverein-Münster-Þýskalandi, Soloway Gallery og Art in General, New York. Hún hefur hlotið verðlaun og styrki frá m.a. Myndlistarsjóði Íslands, Statens Kunstfond (DK) og The American-Scandinavian Foundation.
Sýning stendur frá 4. maí – 27. maí, 2016
The post Recollection – Theresa Himmer appeared first on sím.
Ertu með góða hugmynd fyrir Menningarnótt?
Ertu með góða hugmynd fyrir Menningarnótt?
Menningarnótt verður haldin í 21. sinn þann
- ágúst næstkomandi. Menningarnótt er miðborgarhátíð í orðsis fyllstu merkingu því sjaldan skreytist miðborgin okkar litríkar og skemmtilegri skrúða en akkúrat þennan dag.
Auglýst er eftir áhugasömum og frumlegum hugmyndasmiðum til þess að fylla inn í viðburðalandslag Menningarnætur 2016 en veittir verða styrkir á bilinu 50.000-250.000 kr. til einstaklinga og hópa.
Menningarnótt er þátttökuhátíð sem allir borgarbúar skapa og upplifa saman, úti á torgum og götum miðborgarinnar, í bakgörðum eða söfnum, kirkjum og kaffihúsum, verslunum og fyrirtækjum og ekki síst í húsunum í bænum.
Í ár verður áhersla lögð á að styrkja viðburði sem tengjast Grandasvæðinu við Gömlu höfnina með einhverjum hætti. Tengingin er þó ekki skilyrði fyrir styrkveitingu og er tekið vel á móti öllum umsóknum.
Umsóknarfrestur í Menningarnætupottinn er til og með 31. maí á vefnum menningarnott.is
Menningarnæturpotturinn er samstarfsverkefni Höfuðborgarstofu og Landsbankans sem verið hefur máttarstólpi hátíðarinnar frá upphafi. Rennur allur fjárstuðningur bankans til listamanna sem koma fram á Menningarnótt.
Nánari upplýsingar um styrki hátíðarinnar veitir verkefnastjóri viðburða á Höfuðborgarstofu, Guðmundur Birgir Halldórsson í síma 590-1500 eða á gudmundur@visitreykjavik.is
The post Ertu með góða hugmynd fyrir Menningarnótt? appeared first on sím.
Myndlistarsýningin „Vorið hlær“
HULDA VILHJÁLMSDÓTTIR hefur komið víða við á myndlistarferlinum. Árið 2007 voru listaverk Huldu í forvali vegna Carnegie Art verðlaunanna. Listasafn Íslands, fjölmörg fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar eiga listaverk eftir hana. Vinnustofa Huldu er að Grandagarði 31 og þar hefur hún efnt til sýninga nokkrum sinnum á ári. Hulda er þekktust fyrir málverk sín en viðfangsefni þeirra manneskjan, náttúran og tilfinningar.
ÁSLAUG LILLA LEIFSDÓTTIR er menntaður fatahönnuður en hefur fengist við myndlist og textíllist samhliða starfi sínu. Lilla hefur opnað sýningu á verkum sínum í Safnasafninu á Akureyri og tvívegis á Gallerí Bar 46 ásamt því að hafa tekið þátt í fjölda samsýninga. Lilla notar fjölbreyttan og endurunninn efnivið í myndlist sinni og umfjöllunarefnið er fólkið og mannlífið í samtíð og fortíð.
The post Myndlistarsýningin „Vorið hlær“ appeared first on sím.
Ný námsbraut í málaralist
Ný námsbraut í málaralist í Myndlistaskólanum í Reykjavík
Haustið 2016 verður boðið upp á nám á nýrri námsbraut í málaralist við Myndlistaskólann í Reykjavík. Brautin er ætluð nemendum með stúdentspróf af listnámsbraut eða annað sambærilegt nám. Námsbrautin er skilgreind sem áfanganám á BA-stigi og munu nemendur útskrifast með diplóma að loknu tveggja ára námi við skólann. Hver önn hverfist um sitt þema þar sem brotin verða til mergjar margþætt viðfangsefni og álitamál sem varða málverkið í samtímanum. Námið er að stærstum hluta verklegt og einkennist af áherslu á efni, aðferðir og tækni málaralistarinnar, hugmyndavinnu, persónulega listsköpun og rannsóknir. Fjórðungur þess er af fræðilegum toga þar sem áhersla er lögð á listfræði- og listheimspekilega umfjöllun og samræðuhefð. Breiður hópur lista- og fræðimanna kemur að kennslu við deildina en umsjón með námsbrautinni er í höndum Jóns B K Ransu, listmálara og deildarstjóra við skólann.
The post Ný námsbraut í málaralist appeared first on sím.
Hvíta svítan
Á dögunum opnaði Ólöf Helga Helgadóttir sýninguna Hvíta svítan í Galleri CC í Malmö. Sýningin stendur til 22. maí.
Nánari upplýsingar:
www.gallericc.se
facebook.com/gallericcmalmo
instagram.com/galleri_cc
The post Hvíta svítan appeared first on sím.
Það skrjáfar í nýjum degi
Það skrjáfar í nýjum degi
Bjarni Bernharður Bjarnason opnaði málverkasýningu
Borgarbókasafnið | Menningarhús Gerðubergi
þann 7. maí.
Bjarni Bernharður Bjarnason (f.1950) er jafnvígur á ritlist og myndlist. Hann hefur gefið út fjölda ljóðabóka og á síðasta ári gaf hann út æviminningar sínar í bókinni Hin hálu þrep – Lífshlaup mitt. Lífið hefur ekki alltaf leikið við Bjarna en listin hefur hjálpað honum að ástunda sjálfskönnun um leynda kima sálarlífsins.
Það skrjáfar í nýjum degi er yfirskrift málverkasýningar sem opnar í Gerðubergi laugardaginn 7. maí kl. 14. Bjarni Bernharður er sjálfmenntaður myndlistarmaður sem hefur vakið athygli fyrir djarfar litasamsetningar í samspili við mjúkar línur sem hverfast um strigann.
Efnistökin í málverkum Bjarna Bernharðar spanna vítt svið en hafa þó öll í sér þræði abstraktsjónar. Verk hans eru tilfinningarík og kröftug og tærleiki litanna nýtur sín í afmörkuðum litaflötum.
Bjarni Bernharður er óvenjulegur málari en það kann að skýrast af þeim leiðum sem hann hefur farið til að ná tökum á málverkinu, þ.e.a.s. sjálfsmenntun sú sem hann hefur ástundað, sem hefur gert strangar kröfur um þekkingu og rýni á verkum annarra málara. Þó er ekki svo að stíllinn sé undir sterkum áhrifum frá öðrum, heldur hefur Bjarna Bernharði tekist að „finna sjálfan sig “ í málverkinu og bera verkin sterk persónueinkenni.
Á bókasafninu geta gestir gluggað í úrval ljóðabóka og æviminninga sem Bjarni Bernharður hefur gefið frá sér í gegnum tíðina og stillt er út í tilefni af sýningunni.
The post Það skrjáfar í nýjum degi appeared first on sím.
Artist talk // Spjall gestalistamanna SIM
Gestalistamenn SÍM bjóða alla velkomna á listamannaspjall
Gestalistamenn SIM kynna sig og verk sín þriðjudaginn 10. maí í SIM salnum kl 16:30. Hver listamaður fær 10 mínutur.
Kaffi og kex í boði
SIM Residency artists invites everyone to their artists’ talk Tuesday 10th MAY at 4,30pm
at the SIM house Hafnarstræti 16. Coffee and cakes.
Gestalistamenn SÍM maí 2016
SÍM artist in Residence May 2016
Seljavegur and Korpúlstaðir
Melody Saraniti
Patrick Lee Henderson
Ara Levon Thorose
Tessa Beale
Larissa Borteh
Alice O’Connor
Sarah Yasdani
Anna Rokka
Rut Karin Zettergren
Lars Skjelbreia
Mimì ENNA
Katharina Kunz-Holdener
Patricia Aaron
Nina Gudrun Bjornsson
Group exhibition- SIM house 26.MAY 17-19 and 27.MAY 10-14
The post Artist talk // Spjall gestalistamanna SIM appeared first on sím.
INTERNATIONAL ARTIST EXCHANGE ARTISTS IN RESIDENCE – SYMPOSIUM „TRAUNKUNST“
INTERNATIONAL ARTIST EXCHANGE
ARTISTS IN RESIDENCE – SYMPOSIUM
„TRAUNKUNST“
Félagsmönnum SÍM er boðið að taka þátt í aðþjóðlegu verkefni í
Austurríki í sumar „Traunkunst“.
Þeir sem vilja taka þátt í verkefninu verða að senda umsókn til SÍM
sem fyrst og í síðasta lagi á þriðjudaginn 17. maí.
Valdir verða tveir listamenn úr hópi þeirra sem hafa áhuga á að taka þátt.
Þátttakendum verður séð fyrir fæði og húsnæði á staðnum, en verða
sjálfir að sjá um ferðir á staðinn.
Hægt er að sækja um ferðastyrki til Kynningarmiðstöðvarinnar og Myndstef
Frekari upplýsingar er hægt að finna hér:
International Art Symposium wels englisch-1
The post INTERNATIONAL ARTIST EXCHANGE ARTISTS IN RESIDENCE – SYMPOSIUM „TRAUNKUNST“ appeared first on sím.
LISTASALUR MOSFELLSBÆJAR
LISTASALUR MOSFELLSBÆJAR
Opið fyrir umsóknir vegna sýningarhalds í Listasal Mosfellsbæjar á árinu 2017
Óskað er eftir umsóknum um einka- og samsýningar.
Listasalur Mosfellsbæjar er fjölnota salur í Bókasafni Mosfellsbæjar og er lánaður endurgjaldslaust til sýnenda.
Fylgja skulu með myndir af verkum, ferilskrá og lýsing á fyrirhugaðri sýningu.
Nánari upplýsingar og eyðublöð má finna á vefsíðu Bókasafns Mosfellsbæjar:
www.bokmos.is/listasalur
eða í síma 566 68 22
Umsóknir skulu vera vandaðar og berast fyrir 1. júní 2016.
Umsóknir sendist til:
Listasalur Mosfellsbæjar
Kjarna, Þverholti 2
270 Mosfellsbæ
eða á póstfang: listasalur@mos.is
einnig er hægt að sækja um rafrænt.
The post LISTASALUR MOSFELLSBÆJAR appeared first on sím.
Ljósmyndasýning í Anarkíu
Ljósmyndasýning í Anarkíu í Kópavogi
Sjálfsmynd – Nanna Lind sýnir ljósmyndir í Anarkíu
Yfirskrift sýningarinnar er – 10. sekúndur – Sjálfsmynd – Sjálfsskoðun – Sjálfsblekking
Hér er ljósmyndari og fyrirmynd ein og sama manneskjan og
tímarammi hverrar myndatöku er 10 sekúndur.
Uppistaðan í sýningunni eru eins árs sjálfsmyndaverkefni sem unnið var frá 30. september 2007 til 29. september 2008.
Hér má líta hluta þeirra 366 sjálfsmynda (hlaupár) sem urðu til á þessu tímabili. Þær eru teknar og unnar með það í huga að skrásetja hvern
dag á því augnabliki sem takkinn smellur. Skildleiki við sjálfsmyndir eða sjálfur sem þekja alla vefmiðla í dag er þó ekki mikill.
Sjón er sögu ríkari!
The post Ljósmyndasýning í Anarkíu appeared first on sím.
Nýr sýningarsalur – Gallerí Skot
Gallerí Skot
Nýr sýningarsalur Gallerí Skot hefur hafið starfsemi sína á Skólavörðustíg.
Salurinn er staðsettur í Skúmaskoti á Skólavörðustíg 21a sem er verslun rekin af 10 listakonum og hönnuðum. Nú þegar hefur fyrsta sýningin verið haldin í salnum og var það myndlistarsýning Kristínar Gunnlaugsdóttur sem opnaði í lok mars.
Salurinn er tæplega 10 fermetrar, með mikilli lofthæð og tveimur stórum gluggum sem vísa út á Njálsgötu, salurinn verður opin á opnunartímar verslunarinnar.
Markmið Gallerí Skots er að leggja áherslu á fjölbreyttar sýningar og hvetjum við áhugasama um að hafa samband við okkur.
Allar fyrirspurnir og umsóknir má senda á:
Írisi Ólöfu Sigurjónsdóttur, irisolof@hotmail.com
Söru Vilbergsdótttur, saravilbergs@gmail.com eða
Sigrúnu Norðdahl, sigrunjona@gmail.com
The post Nýr sýningarsalur – Gallerí Skot appeared first on sím.
Sýningaropnun í Hafnarhúsi
Sýningaropnun í Hafnarhúsi
Arnfinnur Amazeen: Undirsjálfin vilja vel
Fimmtudaginn 12. maí kl. 17
Arnfinnur Amazeen (f. 1977) er þriðji listamaðurinn til að sýna í D-salnum árið 2016. Í verkum sínum fæst Arnfinnur við hversdagsleikann í samtímanum og mótsagnakennt hlutverk manneskjunnar innan hans.
Arnfinnur lauk MFA gráðu frá Glasgow School of Art árið 2006 og BA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2001. Af nýlegum einkasýningum Arnfinns má nefna „Kollektive“ í Grafikernes Hus, „Self“ í Værelse 101 í Kaupmannahöfn og „Myrkrið borið inn (á ný)“ í Kling og Bang Reykjavík. Síðasta einkasýning Arnfinns hér á landi var „Gríman er andlitið“ í Kunstschlager árið 2014. Arnfinnur býr og starfar í Kaupmannahöfn.
Í D-sal Hafnarhússins eru að jafnaði sýnd verk eftir listamenn sem ekki hafa áður haldið einkasýningar í stærri söfnum landsins. Markmið sýningaraðarinnar er að gefa efnilegum listamönnum tækifæri til að vinna innan veggja safnsins og beina athygli gesta að nýjum og áhugaverðum hræringum innan listheimsins. Á árinu 2016 eru áætlaðar alls fimm sýningar í sýningaröðinni.
__________________________________________
Exhibition Opening at Hafnarhús
Arnfinnur Amazeen: Subselves Mean Wel
Thursday 12 May 5 p.m.
Arnfinnur Amazeen (b. 1977) is the third artist to exhibit in Gallery D in the year 2016. In his practice he examines the monotonous round of everyday life and the contradictory role of the person within.
Arnfinnur completed a MFA degree from Glasgow School of Art in 2006 and BA degree from the Icelandic Academy of the Arts in 2001. Recent solo exhibitions are „Kollektive“ in Grafikernes Hus, „Self“ in Værelse 101 in Copenhagen and „Myrkrið borið inn (á ný)“ in Kling og Bang Reykjavík. His last solo exhibiton in Iceland was „Gríman er andlitið“ in Kunstschlager in 2014. Arnfinnur lives and works in Copenhagen.
Exhibitions in Gallery D at Hafnarhús focus primarily on artists who have not previously held one-person shows in Iceland’s major galleries. The objective of the exhibition series is to offer promising artists the chance to work on their own terms in a public gallery, and to draw the attention of museum visitors to new and interesting developments in the art world.
The post Sýningaropnun í Hafnarhúsi appeared first on sím.
Sjónlýsing í Listasafni Íslands
Sjónlýsing í Listasafni Íslands. Laugardaginn 14. maí kl. 14
Laugardaginn fyrir Hvítasunnu, 14. maí býður Listasafn Íslands upp á sérstaka leiðsögn um sýninguna: UDSTILLING AF ISLANDSK KUNST, Upphaf kynningar á íslenskri myndlist í Kaupmannahöfn. Á sýningunni er litið um öxl og sýndur hluti þeirra verka sem voru á tímamótasýningum í Kaupmannahöfn árin 1920 og 1927.
Blint og sjónskert fólk er boðið sérstaklega velkomið í þessa leiðsögn, en Listasafn Íslands hefur fengið Guðbjörgu H. Leaman og Þórunni Hjartardóttur, sjónlýsendur, til að semja sjónlýsingar á fjórum völdum verkum á sýningunni.
Guðbjörg og Þórunn sjá um þessa leiðsögn, en jafnframt sjónlýsingunum verður hægt að hlýða á lengri, listsögulegar lýsingar á umræddum verkum, á heimasíðu safnsins.
Listasafni Íslands er umhugað um að ná til áhugasamra listunnenda innan þessa hóps og bjóða þeim upp á þjónustu á því formi sem hentar þeim best.
Sjónlýsingarnar á þessum verkum munu síðan verða aðgengilegar sem hljóðskrár á heimasíðu safnsins, þar sem fjallað er um safneignina og vonir standa til að sjónlýstum verkum í safneigninni fjölgi á næstu misserum, eftir því sem kostur gefst.
The post Sjónlýsing í Listasafni Íslands appeared first on sím.
Hringborðsumræður og listamannaspjall
Nýlistasafnið býður ykkur velkomin á hringborðsumræður og listamannaspjall í tilefni af sýningunni Infinite Next sem að opnaði sl. laugardag.
Viðburðurinn hefst kl. 20 á fimmtudagskvöldið, 12. maí í Nýlistasafninu, Völvufelli 13-21
Titill sýningarinnar útleggst á íslensku sem hið óendanlega framundan og er samsýning íslenskra og erlendra listamanna, þeirra Önnu Líndal, Amy Howden-Chapman, Bjarka Bragasonar, Bryndísar Snæbjörnsdóttur & Mark Wilson, Hildigunnar Birgisdóttur og Pilvi Takala.
Á fimmtudaginn munu myndlistarmennirnir Amy Howden-Chapman, Anna Líndal, Bjarki Bragason, Bryndís Snæbjörnsdóttir og Hildigunnur Birgisdóttir, ræða um sýninguna Infinite Next. Verkin á sýningunni kljást á ólíka máta við kerfi sem öll samfélög glíma við; hagkerfi síð-kapitalismans, hnignun vistkerfa, tilraunir mannsins til þess að hafa áhrif á virkni þeirra, þekkingarframleiðslu, söfnum upplýsinga og áhrifa mannsins í umhverfinu.
Hver listamaður verður með stutt innlegg og síðan taka við almennar samræður.
Húsið opnar með léttum veitingum kl. 20:00 og samræðan hefst kl. 20:30
Hringborðið er öllum opið og þátttakendum að kostnaðarlausu.
Opnunartímar
Nýlistasafnið í Völvufelli, Breiðholti
Opið þriðjudaga til föstudaga frá kl. 12 – 17
laugardaga – sunnudaga frá kl. 13 – 17
Núllið, Bankastræti 0, 101 Reykjavík
fimmtudaga – sunnudaga frá kl. 14 – 18 (lokað milli sýninga)
Aðgangur er ókeypis.
The post Hringborðsumræður og listamannaspjall appeared first on sím.
“Hughrif”
Strengur
Verið velkomin á opnun sýningarinnar Strengur í sýningarsal grafík félagsins að Tryggvagötu 17 (snýr að höfninni).
Á sýningunni sýna Elín Rafnsdóttir, Gréta Mjöll Bjarnadóttir, Helga Egilsdóttir og Iðunn Thors.
Opnunin er föstudaginn 13. maí klukkan 17:00 – 19:00.
Opnunartími sýningar:
- maí föstudagur klukkan 17 – 19
- 15. 19. 20. 21. og 22. maí kl. 14 – 18
leiðsögn í Listasafninu á Akureyri
Fimmtudaginn 12. maí kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn í Listasafninu á Akureyri um ljósmyndasýninguna Fólk / People, en þar sýna sjö ólíkir listamenn verk sín. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir fræðslufulltrúi tekur á móti gestum og fræðir þá um sýninguna. Aðgangur er ókeypis.
Fólk / People segir áhorfandanum sögur af fólki og gefur innsýn í verk sjö listamanna sem allir vinna með ljósmyndir á ólíkan hátt. Á dögum sjálfsmyndanna (e. selfie) hafa portrettmyndir öðlast nýja merkingu og hér gefur að líta fólk í ólíkum aðstæðum séð með augum ólíkra listamanna í gegnum linsur fjölbreyttra myndavéla.
Listamennirnir eru Barbara Probst, Hallgerður Hallgrímsdóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Hrefna Harðardóttir, Hörður Geirsson, Ine Lamers og Wolfgang Tillmans. Sýningarstjóri er Hlynur Hallsson.
Sýningin stendur til 29. maí og er opin þriðjudaga – sunnudaga kl. 12-17. Aðgangur er ókeypis.
The post leiðsögn í Listasafninu á Akureyri appeared first on sím.