Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

„Umhverfismat vegna Skarðssels við Þjórsá“ í Ráðhúsinu

$
0
0

Samspil manngerðra minja og stórbrotinnar náttúru

  1. ágúst 2016

„Umhverfismat vegna Skarðssels við Þjórsá“ er yfirskrift sýningar Borghildar Óskarsdóttur myndlistarmanns sem nú stendur yfir í Ráðhúsi Reykjavíkur. Undanfarin ár hefur Borghildur unnið merkilegt starf með verkum sínum sem fjalla um sögu almúgafólks í stórbrotnu landslagi Landsveitar og Rangárvalla. Forfeður hennar bjuggu í þessum sveitum á mörkum byggðar og óbyggðar þar sem landið er í sífelldri endursköpun vegna eldgosa, jarðskjálfta og sandstorma. Margir bæjanna eru löngu komnir í eyði en á sumum stöðum má enn sjá ummerki búsetu, hlaðna garða og grónar tóftir. Verk hennar fela í sér vinsamlega hvatningu um að læra að þekkja söguna og virða hana. Sjálf segir hún: „Saga fólksins eru rætur okkar og ræturnar liggja um landið.“

Borghildur hefur rakið þráð fimm kynslóða sem bjuggu á þessum slóðum á sjö bæjum á árunum 1760 til 1941 í verkinu „Þræðir á Landi“. Hún hefur komið fyrir steintöflum við bæjartóftirnar með sögubrotum um fólkið sem bjó þar. Þar kemur fram hvernig bújarðir eyðilögðust og fólk hraktist undan svörtum sandinum sem átti uppruna sinn í Heklugosum.

Einn bæjanna er Skarðssel. Þar reistu Höskuldur Jónsson og Arndís Magnúsdóttir, langafi og langamma Borghildar, bæjarhús árið 1894 eftir að hafa hrakist frá eldra bæjarstæði Skarðssels, norðan Skarðsfjalls í Landsveit, undan sandburði sem hafði sléttfyllt allar lautir í túnum og spillt vatnsbóli. Tóftir Skarðssels eru á grösugum árbökkum Þjórsár norðaustan við Skarðsfjall.

Bærinn var grafinn upp í sumar og var uppgröfturinn liður í lögbundnu umhverfismati vegna fyrirhugaðra virkjanaframkvæmda við Þjórsá. Þarna verður byggð svokölluð Hvammsvirkjun, en hún verður efst af þremur virkjunum í neðri hluta Þjórsár. Bændur sem búa á jörðum austan og vestan Þjórsár hafa mótmælt þessum framkvæmdum opinberlega. Þeir telja að uppistöðulónin þrjú sem fylgja framkvæmdunum muni skaða arðsamar bújarðir og ógna fiskgengd í ánni, auk þess sem ásýnd svæðisins gjörbreytist og versni enda mun vatnið hverfa á köflum úr farvegi þessa mikla vatnsfalls.

Verk Borghildar „Umhverfismat“, sem nú er sýnt í Ráðhúsi Reykjavíkur, minnir okkur á líf fólksins sem reisti bæinn á flótta undan svörtum sandinum fyrir tæpum 125 árum. Til að styrkja tengslin við sögu fólksins raðar hún handgerðum leirskálum sínum inn í tóftirnar og vill um leið opna augu okkar fyrir samspili þessara manngerðu minja og stórbrotinnar náttúrunnar sem umlykur þær. Verkið hvetur okkur til að velta umhverfismatinu fyrir okkur. Að skyggnast á bak við tækniorðið og spyrja á hvaða mati það byggi. Sýningin stendur til 11. september.

Borghildur fæddist í Reykjavík árið 1942. Hún stundaði nám við The Edinburgh College of Art frá 1961 til 1963. Hún lauk prófi úr kennaradeild Myndlista og handhíðaskóla Íslands 1973 og kenndi síðan myndlist í 3 ár við Hvassaleitisskóla og 10 ár við Myndlistaskólann í Reykjavík. Síðan hefur Borghildur unnið sem sjálfstætt starfandi listamaður í Reykjavík. Félagi í Myndhöggvarafélaginu í Reykjavík og Sím, Sambandi Íslenskra Myndlistarmanna.

www.borghildur.com

 

 

The post „Umhverfismat vegna Skarðssels við Þjórsá“ í Ráðhúsinu appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356