Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Erla S. Haraldsdóttir opnar sýningu í anddyri Hallgrímskirkju

$
0
0

Sköpunarsaga Erlu

Sjálf sköpunarsagan liggur til grundvallar sýningu Erlu S. Haraldsdóttur, sem opnar í Hallgrímskirkju næstkomandi sunnudag, þann 4. september klukkan 12.15. Erla nefnir sýninguna Genesis og samanstendur hún af sjö nýjum málverkum sem gerð eru sérstaklega fyrir anddyri kirkjunnar. Sköpunarsagan er þekkt stef í kirkjulistasögunni og gengur Erla inn í þá hefð á eigin forsendum með því djarfa litaspili, þykku málningu og ríkulegu tilvísunum sem einkenna verk hennar. Erla vísar meðal annars í safn íslenskra miðaldateikninga, „Sköpun jarðkringlunnar“ úr Íslensku teiknibókinni.

Erla er menntaður listmálari frá Stokkhólmi, Gautaborg og San Fransiskó og notar málverk, hreyfimyndir, myndbandsverk og klippimyndir til að nálgast og endurskapa veruleikann. Hún hefur bæði stundað kennslu og sýningahald víða um N-Evrópu og býr nú og starfar í Berlín.

 

Umsjónarmaður myndlistasýninga Listvinafélags Hallgrímskirkju: Rósa Gísladóttir rosagislad@gmail.com   864 0407

Erla S. Haraldsdóttir: erlahar@simnet.is  +491711864759

Framkvæmdastjóri Listvinafélags Hallgrímskirkju: Inga Rós Ingólfsdóttir ingaros@hallgrimskirkja.is   696 2849

The post Erla S. Haraldsdóttir opnar sýningu í anddyri Hallgrímskirkju appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356