Málþing um myndlist í Fjallabyggð 30. jan. 2016
Laugardaginn 30. jan. kl. 14.00 – 16.30 efnir Alþýðuhúsið á Siglufirði til málþings um myndlist í Fjallabyggð.
Á undanförnum fimm árum hefur sýningarhald, fyrirlestrar, kennsla, samstarfsverkefni og heimsóknir listamanna til Fjallabyggðar stóraukist og vegna tilkomu Listhússins á Ólafsfirði, Menntaskólans á Tröllaskaga, Herhússins á Siglufirði og Alþýðuhússins á Siglufirði, hafa opnast nýjir og áhugaverðir möguleikar í bæjarfélaginu. Starfsemi þessi kemur sem viðbót við annars ágætis sýningarhald á vegum Rauðku, Síldarminjasafnsins, sal Ráðhússins á Siglufirði og annara einkaaðila/gallerýa. Einnig hefur Herhúsið verið í notkun síðan 2005.
Alla jafna eru myndlistasýningar í Kopmunni Alþýðuhúsinu, Herhúsinu í lok listamannadvalar, í Listhúsinu og gjörningar í sal Alþýðuhússins.. Í bæjarfélaginu eru 6-8 erlendir og innlendir listamenn í gestavinnustofum á hverjum tíma og fjölgar upp í 25 manns í ákveðnum verkefnum nokkrum sinnum á ári. Fjöldi manns eru í listnámi og ýmsar uppákomur og sýningar í öðrum sölum af og til.
Gestum fer fjölgandi ár frá ári sem einnig kunna æ betur að meta blómlegt listalíf.
Ýmsir listamenn sem dvalið hafa um stund við verkefni í bæjarfélaginu hafa fest kaup á húsnæði og aðrir koma reglulega til lengri eða skemmri dvalar.
Fjöldi listamanna sem stunda list sína fullu starfi eru búsettir eða eiga hús í Fjallabyggð og setja svip sinn á samfélagið.
Á þessu málþingi verður fókusinn á myndlist, Gott verður að fá einhverskonar heildarmynd yfir það sem í boði er, umfang, stöðu og hvert stefnir.
Dagskráin er sem hér segir, með fyrirvara um einhverjar mín. til og frá.
- 14.00 Aðalheiður S. Eysteinsdóttir , Alþýðuhúsið- Kompan, að koma heim.
- 14.15 Lára Stefánsdóttir, Listnám í heimabyggð..
- 14.30 Steinunn María Sveinsdóttir, Myndlist í Fjallabyggð.
- 14.45 Alice Liu, From 1 to 25: the development of Listhus in 5 years.
- 15.00 Kaffiveitingar
- 15.15 Logi Már Einarsson, Myndlist og samfélag.
- 15.30 Arnar Ómarsson, Reitir.
- 15.45 Guðný Róbertsdóttir, Herhúsið.
- 16.00 Opnar umræður.
Málþingið er öllum opið, og eru allir hvattir til að taka þátt sem láta sig málið varða. Ekkert þátttökugjald.
Allar upplýsingar hjá Aðalheiði í síma 865-5091
Menningarráð Eyþings, Fjallabyggð, Egilssíld og Fiskbúð Siglufjarðar styðja við menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
The post Málþing um myndlist í Fjallabyggð 30. jan. 2016 appeared first on sím.