Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Leiðsögn í Listasafninu á Akureyri -samsýninguna í drögum

$
0
0

Fimmtudaginn 28. janúar kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi um samsýninguna í drögum / Prehistoric Loom IV sem var opnuð um síðustu helgi. Hlynur Hallsson safnstjóri Listasafnsins tekur á móti gestum og fræðir þá um sýninguna og einstaka verk. Aðgangur er ókeypis.

Sýningin í drögum / Prehistoric Loom IV skoðar teikninguna sem tímabil í ferli listsköpunar, nánast hulið ferli sem markar andartak milli hugsunar og framkvæmdar. Í þessu óræða rými má greina bergmál persónulegra og faglegra tengsla sem einkenna samfélög listamanna. Sýningin er ávöxtur þeirra sambanda sem mynduðust hjá meistaranemum við Glasgow School of Art í Skotlandi árið 2014.
Hún var fyrst sett upp í No Toilet Gallery í Seoul í Suður-Kóreu, því næst í Yada Shimin Gallery í Nagoya í Japan og nú síðast á listahátíðinni Glasgow Open House Art Festival, vorið 2015. Segja má að sýningin, eða sýningarröðin, sé lífræn í formi þar sem hún breytist á hverjum stað. Nýir listamenn bætast við og koma þannig með ný innlegg í hið sídýpkandi samtal. Að þessu sinni sýna 27 alþjóðlegir listamenn, þar af sjö íslenskir.

Listamenn: Kelli Sims, Sasha Panyuta, Fanny Wickström, Selma Hreggviðsdóttir, Marysia Gacek, Katrina Vallé, Vigdis Storsveen, Ying Cui, Johnathan Cook, Jack Cheetham, Emily McFarland, Heejoon Lee, Saejin Choi, Alexandra Sarkisian, Lauren Hall, Kirsty Palmer, Guo-Liang Tan, Elísabet Brynhildardóttir, Aniara Oman, Malie Robb, Simon Buckley, Anna Hrund Másdóttir, Klængur Gunnarsson, Maria Toumazou, Ólöf Helga Helgadóttir, Freyja Reynisdóttir, Guðmundur Thoroddsen.

Sýningarstjórar: Elísabet Brynhildardóttir, Selma Hreggviðsdóttir og Katrina Vallé.

The post Leiðsögn í Listasafninu á Akureyri -samsýninguna í drögum appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356