Gunnarsstofnun auglýsir eftir umsóknum um dvöl í Klaustrinu árið 2021
Umsóknarfrestur er til 15. júní 2020
KLAUSTRIÐ er dvalarstaður fyrir innlenda og erlenda lista- og fræðimenn, rithöfunda, þýðendur og tónskáld. Dvalargestir fá til endurgjaldslausra afnota litla íbúð í Gunnarshúsi á Skriðuklaustri um 3-6 vikna skeið til að vinna að fyrirfram ákveðnum verkefnum.
Samkvæmt reglum um úthlutun skulu verkefni er varða Gunnar Gunnarsson, Austurland eða austfirsk fræði njóta forgangs.
Sækja skal um dvöl í Klaustrinu á þar til gerðu eyðublaði og senda það í pósti eða tölvupósti til Gunnarsstofnunar. Í umsókn þarf að koma fram auk almennra upplýsinga um umsækjanda, að hverju viðkomandi hyggst vinna og hvaða tímabil sé heppilegast.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar og umsóknareyðublað á vefslóðinni www.skriduklaustur.is
Senda skal fyrirspurnir eða umsóknir á Gunnarsstofnun, Skriðuklaustri, 701 Egilsstaðir eða á netfangið klaustur@skriduklaustur.is

The post Klaustrið – Gestaíbúð að Skriðuklaustri appeared first on sím.