Kæru félagsmenn
SÍM stendur til boða að taka á leigu tvær hæðir 3. og 4. hæð, í Fannborg 2, Kópavogi. Húsnæðið hentar mjög vel fyrir vinnustofur, stórir gluggar og hátt til lofts.
Við gerum ráð fyrir að geta boðið fermeterinn á kr. 1.700 með sameign.
Við erum að kanna hvort áhugi sé fyrir hendi hjá félagsmönnum fyrir þessu húsnæði.
Hamraborgin er miðsvæðis á höfuðborgarsvæðin, stutt er í alla þjónustu og góðar almenningssamgöngur.
Áhugasamir eru beðnir að senda póst á skrifstofu SÍM ( sim@sim.is )
Athugið þó að við erum aðeins að kanna áhuga félagsmanna og hvort það sé grundvöllur fyrir því að taka húsið á leigu undir vinnustofur.







The post Nýjar vinnustofur í Fannborg 2, Kópavogi appeared first on sím.