
Samsýning listamanna sem hafa dvalið og starfað í gestavinnustofum SÍM á Seljavegi og á Korpúlfsstöðum í febrúar opnar í dag, þriðjudaginn 26.febrúar klukkan 17:00.
Á sýningunni verða til sýnis fjölbreytt verk sem eru afrakstur rannsókna og vinnu listamannanna sem hafa dvalið í mánuð eða lengur í Reykjavík.
Listamennirnir koma hvaðanæva að úr heiminum og vinna með ólíka miðla. Sýningin verður í SÍM salnum, Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík.
Listamennirnir verða allir viðstaddir opnunina:
Adam Sébire
David Dupak
Johannes Mandorfer
Marcel Tarelkin
Sarah Mockford
Sheena Malone
Sigridur Johannesdottir
Su KIM
Thomas Pichardo Espaillat
The post Samsýning gestalistamanna: Adrift appeared first on sím.