Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Listasalur Mosfellsbæjar – Frumdrættir og fyrirmyndir

$
0
0

Listasalur Mosfellsbæjar

Frumdrættir og fyrirmyndir
17. október til 7. nóvember

Myndlistarsýningin Frumdrættir og fyrirmyndir verður opnuð í Listasal Mosfellsbæjar í húsakynnum Bókasafns Mosfellsbæjar í Kjarnanum, Þverholti 2, Mosfellsbæ laugardaginn 17. okt. 2015 kl. 15.00.

Sýningarheitið vísar til teikningarinnar sem tjáningarmiðils.  Sýningin er samstarfsverkefni og stefnumót listamannanna Guðbjargar Lindar, Jean Larson, Kristínar Geirsdóttir og Ólafar Oddgeirsdóttur. Viðfangsefni og hugmyndaleg nálgun listamannanna eru ólík en verkin á sýningunni eiga það sameiginlegt að í þeim eru kannaðir og nýttir möguleikar teikningarinnar.

Listamennirnir eiga að baki langan og fjölbreyttan feril, fjölda einka- og samsýninga bæði hér heima og erlendis.  Guðbjörg, Kristín og Ólöf hafa oft unnið saman en þetta er í fyrsta sinn sem Jean Larson kemur til liðs við þær.  Jean er frá Michigan í Bandaríkjunum og er mikill heimshornaflakkari. Hún  hefur um nokkurt skeið dvalið á Íslandi og á nú athvarf á Flateyri þar sem hún hefur unnið verkin fyrir þessa sýningu.

Á Degi myndlistar 31. október verður boðið upp á listamannaspjall kl 15.00 .

Sýningin er opin á afgreiðslutíma Bókasafnsins:

Mánudaga og þriðjudaga frá kl 12.00 – 18.00

Miðvikudaga frá kl. 10.00 – 18.00

Fimmtudaga og föstudaga frá kl. 12.00 – 18.00

Laugardaga kl 13.00 – 17.00

Sýningunni lýkur 7. nóv.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356