Miðvikudaginn 4. júlí kl. 14.00 opnar Freyja Eilíf sýningu í
Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
“Listaverk um ferðalög út úr mannslíkamanum inn í aðra
heima”
Trommukjöt, sýning eftir Freyju Eilíf opnar miðvikudaginn 4. júlí kl.
14:00 – 17.00 í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Til sýnis verða
nýleg verk eftir listakonuna sem unnin eru eftir leiðslum út úr
mannslíkamanum inn í aðra heima.
Sýningin er opin daglega til 22. júlí frá kl. 14.00 – 17.00
“Á sýningunni Trommukjöt verða málverk, skúlptúrar og vídjóverk
sem ég hef unnið sem minjar og vísbendingar annarra tilvistarsviða
eftir eigin tilraunir gegnum drauma- og hugleiðsluferðalög. Það sem
drífur mig áfram í þessari rannsókn er forvitni um jarðvist mannsins
og það sem ekki er staðfastlega vitað um heiminn og okkur sjálf.
Með verkunum vil ég færa víddirnar, raunverulegar og ímyndaðar,
huldar og óstaðsettar inn í okkar veruleika. Til þess að varðveita þær
og færa hugmyndina um víddirnar nær okkur og þenja þannig svæði
mannshugans sem og heiminn sem hann dvelur í.
Freyja Eilíf er fædd í Reykjavík 1986 og útskrifaðist af myndlistardeild
Listaháskóla Íslands árið 2014. Hún hefur unnið sýningar víða um
Norðurlönd og Evrópu ásamt því að starfrækja sýningarýmið Ekkisens
í Þingholtunum í miðbæ Reykjavíkur til dagsins í dag sem hún
stofnaði árið 2014. Freyju voru veitt laun úr starfsjóði listamanna árið
2018 og að auki hefur hún hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir
störf sín á sviði myndlistar, svo sem tilnefningu til
Menningarverðlauna DV 2016 og Tilberann árið 2015.
Uppbyggingarsjóður/Eyþing, Fjallabyggð, menningarsjóður
Siglufjarðar og Egilssíld styrkja menningarstarf í Alþýðuhúsinu á
Siglufirði.
The post Trommukjöt, sýning eftir Freyju Eilíf, 04.07.2018 í Kompunni á Siglufirði appeared first on sím.