[ENGLISH BELOW]
Sýningu Magnúsar Sigurðarsonar og Margrétar Helgu Sesseljudóttur í Harbinger lýkur laugardaginn 20. maí. Sýningin er hluti af sýningaröðinni Eitt Sett, þar sem stefnt er saman tveimur myndlistarmönnum sem komnir eru mislangt á ferli sínum í von um að samleikur þeirra róti upp ferskum næringarefnum sem þyrlast svo út í umhverfið.
Með Golfstraumnum bar Magnús Sigurðarson að landi og í flæðarmálinu hitti hann fyrir Margréti Helgu Sesseljudóttur. Saman ráfuðu þau um í fjörunni, báru saman bækur sínar, veltu við steinum og skyndilega glitti í sýninguna „Lampabrot”.
Við ströndina skiptist á flóð og fjara. Kræklingurinn opnar og lokar skeljum sínum í takt við sjávarföllin og rembist við að laga sig að aðstæðum. Lengst úti á vetrarbrautinni snúast grjóthnullungarnir ómótaðir í tímalausu eirðarleysi og bíða þess að sogast inn í slípandi hringiðu náttúruaflanna. Gleymdir hlutir fljóta upp á yfirborðið og máta sig í nýrri mynd. Í ljósaskiptunum leitar maðurinn að þvældum strætómiða meðan gæsirnar kvaka út í vindinn.
Sýningarstjórar: Unndór Egill Jónsson & Una Margrét Árnadóttir
Sýningarröðin “Eitt sett” samanstendur af fjórum sýningum í Harbinger á árinu 2017. Sýningarröðin er styrkt af Myndlistarsjóði.
OPNUNARTÍMAR HARBINGER:
Fimmtudagar: 17.00 – 20.00
Föstudagar: 14.00 – 17.00
Laugardagar: 14.00 – 17.00
//////
Magnús Sigurðarson was delivered here across the sea by the Gulf stream where he met Margrét Helga Sesseljudóttir by the shore. Together they wandered around the beach, comparing thoughts and turning over stones when suddenly the exhibition “LumpCrush” appeared.
Curators: Una Margrét Árnadóttir & Unndór Egill Jónsson
The exhibition series “One set” include four exhibitions in Harbinger in the year 2017.
HARBINGER OPENING HOURS:
Thursdays: 17.00 – 20.00
Fridays: 14.00 – 17.00
Saturdays: 14.00 – 17.00
The post Sýningarlok — LAMPABROT — end of show appeared first on sím.