Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Brunaútsala á útskriftarverkum Arnars Birgissonar í Hafnarhúsinu

$
0
0

Arnar Birgis er nemandi á lokaári við myndlistardeild Listaháskóla Íslands og hefur þessa vikuna sýnt verk sín á útskriftarsýningu LHÍ í Listasafni Reykjavíkur. Sýning hans sem ber titilinn Undir ómeðvitað (meðvitundar) (meðvitundarstig II hluti) er afrakstur þessarrar síðustu annar við myndlistardeild LHÍ, ásamt einstaka eldri verkum sem eiga að sýna vegferð listamannsins í gegnum málverkið og hið daglega líf. Málverkin hafa öll sterka tengingu í hið ómeðvitaða, og andlega hleðsu lita á striga og hefur hvert verk öðlast sitt eigið líf í því ferli. Verkin, sem eru á annan tug, eiga í samtali við íslensku landslagshefðina sem og abstrakt tilfinningu listamannsins við gerð málverka.

Á sýningunni hefur Arnar búið sér til sitt eigið listaverkastúdíó í porti Hafnarhússinns og staðið í því að skapa enn fleiri verk meðan á sýningu stendur. Nú um helgina, á loka dögum sýningarinnar, mun Arnar taka sig til og efnatil svokallaðar Brunaútsölu á verkum sínum, því eins og gefur að skilja er pláss af skornum skammti hjá ungu fólki í dag og stendur ekki til að koma öll verkunum fyrir í kjallara foreldra og annarra vandamanna, heldur koma þeim út í samfélagið til samborgaranna. Fólki gefst því tækifæri til að fá verkin á hálfvirði – gjöf en ekki gjald.

Laugardag og Sunnudag, 19. – 20. maí, er opið frá klukkan 10 um morguninn til 17 um eftirmiðdaginn og fullkomið að kíkja og ná sér í verk, skoða verk og svo bara halda ísbíltúrnum áfram. Allir eru velkomnir.

The post Brunaútsala á útskriftarverkum Arnars Birgissonar í Hafnarhúsinu appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356