Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

SÍM auglýsir eftir umsóknum fyrir gestavinnustofu í Finnlandi.

$
0
0

SÍM auglýsir eftir umsóknum frá félagsmönnum sem hafa áhuga á að dvelja í gestavinnustofu í borginni Vantaa í Finnland í ágúst 2017.

Umsóknarfrestur er til 31. mars 2017.

Gestavinnustofuskipti milli SÍM og Vantaa Artists’ Association í Finnlandi:

SÍM félaga er boðið að dvelja í einn mánuð í ágúst 2017 og kemur finnskur myndlistarmaður í staðinn og dvelur í einn mánuð í gestavinnustofu SÍM á Korpúlfsstöðum í ágúst.
Dvalargjald er ekkert og listamaður fær 500 EUR í dvalarstyrk.
Hægt er að sækja um ferðastyrk hjá Myndstefi haustið 2017.

Hús Gjutars er í borginni Vantaa, nálægt Helsinki, en hún er fjórða stærsta borgin í Finnlandi. Gestavinnustofan er staðsett í gömlu húsi í miðri Vantaa. Gestavinnustofan er á efri hæðinni og er með sér svölum. Svefnherbergið er um 15 m2 á stærð. Í íbúðinni er ísskápur, eldavél, eldhúsáhöld og grunn-matvörur. Á baðherberginu er sturta og þvottavél. Þráðlaust net.

Vinnustofan er 22 m2 og er einnig á efri hæðinni. Á vinnustofunni er grafíkpressa og vaskur.
Gestalistamenn hafa aðgang að hjóli, en stutt er í lest og strætó. Að sama skapi er stutt í verslunarmiðstöð.

http://www.vantaantaiteilijaseura.fi/

Umsókn skal senda á application@sim.is

Umsókn skal innihalda: ferilskrá, 4 myndir af verkum, og stuttan texta um gestavinnustofu dvölina.

The post SÍM auglýsir eftir umsóknum fyrir gestavinnustofu í Finnlandi. appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356