Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Eyjar á himni og jörð – síðasta sýningarhelgi í Listasafni ASÍ

$
0
0

Listasafn ASÍ, 10. september til 2. október 2016

Eyjólfur Einarsson, Eyjar á himni og jörð
Síðasta sýningarhelgi – listamaðurinn verður á staðnum laugardag og sunnudag.

Nú stendur yfir í Listasafni ASÍ sýning á verkum listamannsins Eyjólfus Einarssonar á olíumálverkum og vatnslitamyndum. Sýnir hann í öllu húsinu en þetta er síðasta sýningin sem haldin er á vegum Listasafns ASÍ að Freyjugötu 41.
Sýningin heitir Eyjar á himni og jörð og er fantasía um lífið og tilveruna og spurningar sem engin svör fást við. Eyjólfi finnst mikill heiður að sýna í húsinu sem ber nafn fyrsta myndlistarkennara hans og tileinkar þess vegna þessa sýningu Ásmundi Sveinssyni með því að sýna tvær styttur sem hann gerði 11 til 12 ára undir handleiðslu Ásmundar.
Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13:00 til 17:00 og það er enginn aðgangseyrir.

Nánari upplýsingar hjá Listasafni ASÍ
Freyjugötu 41
s. 511 5353
www.listasafnasi.is
asiinfo@centrum.ismyndiNINGAROPNUN

The post Eyjar á himni og jörð – síðasta sýningarhelgi í Listasafni ASÍ appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356