Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Listasafnið á Akureyri, Ketilhús: Leiðsögn um sýningu Thoru Karlsdottur

$
0
0

Fimmtudaginn 29. september kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi um sýningu Thoru Karlsdottur, Kjólagjörningur. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, tekur á móti gestum og fræðir þá um sýninguna og gjörninginn. Aðgangur er ókeypis.

Á sýningunni má sjá afrakstur níu mánaða kjólagjörnings Thoru sem stóð yfir frá mars til desember 2015. Að klæða sig í nýjan kjól á hverjum morgni og klæðast kjól til allra verka í 280 daga; 40 vikur; níu mánuði er áskorun sem þarfnast úthalds og elju. Kjólarnir komu frá fólki sem gaf þá í nafni listarinnar og voru fluttir frá vinnustofu Thoru yfir í Listasafnið, Ketilhús síðastliðinn föstudag með dyggri aðstoð yfir 200 nemenda úr Brekkuskóla.

Á meðan á gjörningnum stóð tók Björn Jónsson daglega ljósmyndir af Thoru. Hann átti stóran þátt í ferlinu; hafði áhrif og kom með hugmyndir varðandi staðsetningu og vinnslu myndanna. Í sameiningu gefa þau út bók um gjörninginn og sýninguna sem verður fáanleg undir lok sýningarinnar.

Thora Karlsdottir útskrifaðist úr Europäische Kunstakademie í Trier í Þýskalandi 2013. Hún hefur haldið níu einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum bæði á Íslandi og víða erlendis. Thora rekur vinnustofuna Lifandi vinnustofa í Listagilinu á Akureyri.
Sýningin er opin þriðjudaga til sunnudaga kl. 12-17. Leiðsögn um sýningar Listasafnsins á Akureyri er á fimmtudögum kl. 12.15-12.45. Aðgangur er ókeypis.

The post Listasafnið á Akureyri, Ketilhús: Leiðsögn um sýningu Thoru Karlsdottur appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356