Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Úthlutun verkefnastyrkja og ferða- og menntunarstyrkja Myndstefs.

$
0
0

Í dag, fimmtudaginn 22. september kl. 17:00 verður úthlutað verkefnastyrkjum og ferða- og menntunarstyrkjum Myndstefs. Styrkafhendingin fer fram í SÍM salnum, Hafnarstræti 16.
Í úthlutunarnefnd Myndstefs sátu; Anna Karen Jörgensdóttir (Hönnunarmiðstöðin), Hrólfur Karl Cela (Arkitektafélag Íslands) og Silja Rut Thorlacius (Ljósmyndarafélag Íslands).

20 umsækjendur hlutu verkefnastyrk að upphæð 300.000 kr. hver og 15 umsækjendur hlutu ferða- og menntunarstyrk að upphæð 150.000 kr. hver. Fjármunir sem Myndstef úthlutar með þessum hætti eru greiðslur til samtakanna vegna notkunar á vernduðum myndverkum en eitt af hlutverkum samtakanna er að koma þeim greiðslum til myndhöfundanna, meðal annars í formi styrkja.
Þetta er fjórtánda árið sem stjórn Myndstefs veitir styrki af þessu tagi og nema þeir rúmlega 90 milljónum á þessu fjórtán ára tímabili.

Styrkþegar verkefnastyrkja 2016
Eftirtaldir aðilar hlutu verkefnastyrk að upphæð 300.000 hver, alls bárust 50 umsóknir um þennan styrk í ár:

Kristín Bogadóttir – Sýningin „Dálítill sjór“ í Veggnum í Þjóðminjasafninu
Bjargey Ólafsdóttir – Samsýningin „Ljósmálun – Ljósmyndin“ í Listasafni Íslands
María Dalberg – Hreyfimyndin „Black“
Soffía Sæmundsdóttir – Sýningin „Við sjónarrönd / Above and below the horizon“ í Listasafni Reykjaness
Rósa Sigrún Jónsdóttir – Sýningin „MAC International 2016“ í Belfast á Norður Írlandi
Bára Kristinsdóttir – Útgáfa á ljósmyndabók
Freyja Eilíf Logadóttir – Útgáfa á bókinni „Draumaland”
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir – Uppsetning á afmælishátið myndlistarhópsins Íslenska Hreyfiþróunarsamsteypan
Ingibjörg Huld Halldórsdóttir – Sýningin „Skömmin er svo lík mér“ í Gerðubergi
Linda Ólafsdóttir – Myndskreytingar í bókina „Íslandsbók barnanna”
Eygló Harðardóttir – Útgáfa og útgáfusýning á bókverkinu „Sculpture“
Jóna Hlíf Halldórsdóttir – Einkasýningin „Óljós Þrá“ í Grafík salnum
Borghildur Óskarsdóttir – Sýningin „Umhverfismat vegna Skarðssels við Þjórsá“
Kolbeinn Hugi Höskuldsson – Sýningin „WINTER IS COMING (Homage to the Future)“ í Vínarborg
Þóra Sigurðardóttir – Myndlistasýningin „RÝMI/TEIKNING“ í Listasafni ASÍ
Lára Garðarsdóttir – Myndskreytingar í barnabók um litla ísbirnu og móður hennar
Guðmundur Thoroddsen – Einkasýning í Asya Geisberg Gallery í New York
Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir – Einkasýning í Kunsthalle Sao Paulo í Brasilíu
Gunndís Ýr Finnbogadóttir – Sýningin „Reasons to Perform“ í Nýlistasafninu
Eirún Sigurðardóttir – Kvikmyndin „Hjartastöð“

 

Styrkþegar ferða- og menntunarstyrkja 2016
Eftirtaldir aðilar hlutu ferða- og menntunarstyrk að upphæð 150.000 hver, alls bárust 37 umsóknir um þennan styrk í ár:
Guðjón Ketilsson – Vinnustofudvöl í Circolo Scandiavio í Rómarborg
Harpa Dögg Kjartansdóttir – Rannsóknarverkefni á Grænlandi
Nína Óskarsdóttir – Vegna sýningar í Two Queens í Leicester í Englandi
Katrína Mogensen – Vegna sýningar í Two Queens í Leicester í Englandi
Guðrún Heiður Ísaksdóttir – Vegna sýningar í Two Queens í Leicester í Englandi
Freyja Eilíf Logadóttir – Vegna sýningar í Two Queens í Leicester í Englandi
Anna Hrund Másdóttir – Skúlptúrnámskeið við Anderson Ranch Arts Center í Colorado
Sigtryggur Berg Sigmarsson – Samsýningin „UNSAFE AND SOUNDS“ í Vín Austurríki
Unnar Örn J. Auðarsson – Vinnustofudvöl í Kjarvalsstofu í París
Magnús Jensson – Rannsókn á fornu norrænu handverki í Jórvík á Englandi
Ingibjörg Guðmundsdóttir – Verkefnið „Landscape : Islands“ í Brighton á Englandi
Eva Ísleifsdóttir – Samstarf og sýning í Aþenu í Grikklandi
Hulda Rós Guðnadóttir – Kvikmyndahátíðirnar „Vision du Réel“ og „Nordisk Panorama“
Bragi Þór Jósefsson – Einkasýning í Umbrella Arts gallery í New York
Sigrún Ólöf Einarsdóttir – Samsýning glerlistamanna í Panevezys í Litháen
Úthlutunarnefnd á vegum Myndstefs fer yfir allar umsóknir og ákveður styrkveitingar.

The post Úthlutun verkefnastyrkja og ferða- og menntunarstyrkja Myndstefs. appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356