Jón Óskar opnar sýningu í listhúsi Ófeigs á Skólavördustíg 5
laugardaginn 4. júní kl. 15:00 til 17:00.
„Rotman/Reykjavík“
Jón Óskar er málari stórra flata og stærð hefur ávallt verið órjúfanlegur hluti af tjáningarmáta hans. Magn er sömuleiðis einkennandi fyrir verklag hans enda kýs hann fremur að fást við myndraðir en einstök og afmörkuð verk. Þörfin fyrir að bregða upp órofa ferli verður til þess að eitt verk leiðir af öðru án þess að skörp skil verði frá mynd til myndar. Slík nálgun krefst þess að áhorfandinn fái innsýn í framvinduna sem stýrir flæðinu og upplifi hana sem tímatengda fremur en rýmiskennda. Því segja stök verk aðeins hálfa söguna rétt eins og hljóðbrot úr samfelldu symfónísku ljóði.
Grunneiningin í myndlist Jóns Óskars er og hefur ætíð verið teikningin í sinni einföldustu, en um leið margslungnustu mynd.
Jón Óskar stundaði nám við School of Visual Arts í New York á níunda áratuginum. Hann á að baki fjölda einka- og samsýninga á Íslandi og erlendis. Verk hans eru að finna á einka- og opinberum söfnum víða um heim.
Sýningin verður opin á verslunartíma mán. – föstud. 10:00- 18:00 , laug. 11:00- 16.00. Lokað sunnudaga.
The post Jón Óskar opnar sýningu í listhúsi Ófeigs appeared first on sím.