Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

FUNDARBOÐ AÐALFUNDUR SAMBANDS ÍSLENSKRA MYNDLISTARMANNA

$
0
0

FUNDARBOÐ
AÐALFUNDUR SAMBANDS ÍSLENSKRA MYNDLISTARMANNA
verður haldinn 14. apríl 2016 í SIM – Húsinu, Hafnarstræti 16,
kl. 17:00

Dagskrá aðalfundar:
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar
3. Stjórnarkosning
4. Kosning eins fulltrúa í sambandsráð sbr. 9. gr.
5. Kosning félagslegs skoðunarmanns og löggilts endurskoðanda til eins árs
6. Lagabreytingar
7. Ákvörðun félagsgjalda
8. Önnur mál

Allar samþykktir á aðalfundi verða að hljóta einfaldan meirihluta greiddra atkvæða.

Stjórnin skal kosin rafrænt og eru allir skuldlausir félagsmenn sambandsins kjörgengir.

Skrifleg tilkynning um framboð til stjórnarstarfa skal hafa borist skrifstofu SÍM eigi síðar en kl. 16:00, mánudaginn 22. febrúar 2016.

Eftirtaldir stjórnarmenn og formaður SÍM voru kjörnir til tveggja ára í apríl 2014 og lýkur þeirra kjörtímabili á þessum aðalfundi.
Jóna Hlíf Halldórsdóttir,formaður, Gunnhildur Þórðardóttir,aðalmaður, Steingrímur Eyfjörð, aðalmaður og Sigurður Valur Sigurðsson, varamaður.

Eftirtaldir stjórnarmenn voru kjörnir til tveggja ára í apríl 2015 og lýkur þeirra kjörtímabili í apríl 2017:
Erla Þórarinsdóttir, aðalmaður, Sindri Leifsson, aðalmaður, Helga Óskarsdóttir, varamaður

Jóna Hlíf Halldórsdóttir,formaður SÍM og Steingrímur Eyfjörð, hafa þegar tilkynnt að þau gefi kost á sér til endurkjörs.

Þann 4. mars n.k. verður sent út endanlegt fundarboð með lista yfir þá félagsmenn sem gefa kost á sér til stjórnarstarfa fyrir SÍM næsta kjörtímabil.

Bestu kveðjur

Ingibjörg Gunnlagusdóttir
framkvæmdastjóri

The post FUNDARBOÐ AÐALFUNDUR SAMBANDS ÍSLENSKRA MYNDLISTARMANNA appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356