Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Aðalfundarboð SÍM

$
0
0

FUNDARBOÐ

AÐALFUNDUR SAMBANDS ÍSLENSKRA MYNDLISTARMANNA verður haldinn 29. maí 2021 í SIM – Húsinu, Hafnarstræti 16, kl. 13:00 -16:00

Dagskrá aðalfundar:

1.  Skýrsla stjórnar

2.  Reikningar

3.  Stjórnarkosning

4.  Kosning eins fulltrúa í sambandsráð sbr. 9. gr.

5.  Kosning félagslegs skoðunarmanns og endurskoðanda til eins árs

6. Lagabreytingar

7.  Kosning þriggja fulltrúa og eins varafulltrúa í Siðanefnd

8.  Ákvörðun félagsgjalda

9.  Önnur mál

Allar samþykktir á aðalfundi verða að hljóta einfaldan meirihluta greiddra atkvæða.

Stjórnin skal kosin rafrænt og eru allir skuldlausir félagsmenn sambandsins kjörgengir.

Skrifleg tilkynning um framboð til stjórnarstarfa skal hafa borist skrifstofu SÍM (ingibjorg@sim.is ) eigi síðar en kl. 16:00, mánudaginn 8. mars 2021.

Eftirtaldir stjórnarmenn og formaður SÍM voru kjörnir til tveggja ára í júní 2020 og lýkur þeirra kjörtímabili 2022:

Anna Eyjólfsdóttir, formaður, Hlynur Helgason, aðalmaður og Páll Haukur Björnsson, varamaður.

Freyja Eilíf tók við af Huldu Rós Guðnadóttur sem aðalmaður haustið 2020.

Hulda var kosin til tveggja ára árið 2020 og skipar Freyja því sæti hennar í stjórn til 2022, sem aðalmaður.

Eftirtaldir stjórnarmenn voru kjörnir til tveggja ára í apríl 2019 og lýkur þeirra kjörtímabili á þessum aðalfundi.

Rúrí, aðalmaður, Starkaður Sigurðarson, aðalmaður.

Nú þarf því að kjósa 2 aðalmenn til tveggja ára, í stað Rúrí og Starkaðs, og einn varamann í stað Freyju Eilífar.

Þann  10. mars verður sent út endanlegt fundarboð með lista yfir þá félagsmenn sem gefa kost á sér til stjórnarstarfa fyrir SÍM næsta kjörtímabil.

Drög að Siðareglum SÍM verða jafnframt send út með fundarboðinu.

Bestu kveðjur,

Ingibjörg Gunnlagusdóttir, framkvæmdastjóri

The post Aðalfundarboð SÍM appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356