Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Samkeppni um ljóslistaverk fyrir Vetrarhátíð 2021

$
0
0

Reykjavíkurborg og Orka Náttúrunnar í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs standa fyrir samkeppni um þrjú ljóslistaverk á Vetrarhátíð 2021. Verkin sem verða valin verða sýnd á Vetrarhátíð 2021 dagana 4.-7. febrúar.

Samkeppnin er opin öllum hönnuðum, arkitektum, myndlistamönnum,
tónlistarmönnum, ljósamönnum, tölvunarfræðingum eða öðrum þeim sem vinna með rafmagn og list í einhverju formi. Hvatt er til samstarfs milli ólíkra greina.
Kostur er ef verkið felur í sér gagnvirkni sem kallar á þátttöku borgaranna.
Undanfarin ár hefur Hallgrímskirkja verið eitt helsta kennileiti hátíðarinnar og eru ein verðlaun eyrnamerkt vörpun á stafrænu verki á Hallgrímskirkju, en önnur verk má framkvæma hvar sem er í borgarlandinu.

Markmið samkeppninnar er að virkja íslenskt hugvit og styrkja Reykjavík sem skapandi borg sem einkennist af lifandi og spennandi umhverfi. Fyrsta Vetrarhátíð í Reykjavík var haldin árið 2002 og hefur markmiðið með henni verið frá upphafi að bjóða ljós í vetrarmyrkinu og auka ánægju og upplifun borgarbúa.

Verðlaun
Fyrstu verðlaun 1.000.000 kr.
Önnur verðlaun 500.000 kr.
Þriðju verðlaun 300.000 kr.

Dómnefnd skipa:
Arna Schram, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar.
Svanborg Hilmarsdóttir, tæknistjóri götuljósa OR
Rebekka Guðmundsdóttir, borgarhönnuður og verkefnastjóri hjá Skipulags- og framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar
Marcos Zotes, arkitekt Basalt arkitektar, AÍ
Búi Bjarmar Aðalsteinsson, hönnuður

Keppnisritari og trúnaðarmaður:
Gerður Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

Skilafrestur rennur út á miðnætti þann 14. desember næstkomandi.
Frestur til að senda inn fyrirspurnir er 17. nóvember sem birtast á síðu Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs þann 19. nóvember.Ýttu hér til að lesa nánari upplýsingar um samkeppnina 

The post Samkeppni um ljóslistaverk fyrir Vetrarhátíð 2021 appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356