Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Aðalfundur SÍM 2020

$
0
0

FUNDARBOÐ

AÐALFUNDUR SAMBANDS ÍSLENSKRA MYNDLISTARMANNA verður haldinn laugardaginn 25. apríl 2020 í SIM – Húsinu, Hafnarstræti 16, kl. 13:00 -16:00

Dagskrá aðalfundar:

1.  Skýrsla stjórnar

2.  Reikningar

3.  Stjórnarkosning

4.  Kosning eins fulltrúa í sambandsráð sbr. 9. gr.

5.  Kosning félagslegs skoðunarmanns og endurskoðanda til eins árs

6.  Lagabreytingar

7.  Ákvörðun félagsgjalda

8.  Önnur mál

Allar samþykktir á aðalfundi verða að hljóta einfaldan meirihluta greiddra atkvæða.

Stjórnin skal kosin rafrænt og eru allir skuldlausir félagsmenn sambandsins kjörgengir.

Skrifleg tilkynning um framboð til stjórnarstarfa skal hafa borist skrifstofu SÍM (ingibjorg@sim.is) eigi síðar en kl. 16:00, fimmtudaginn 27. febrúar 2020. 

Eftirtaldir stjórnarmenn og formaður SÍM voru kjörnir til tveggja ára í maí 2018 og lýkur þeirra kjörtímabili á þessum aðalfundi.

Anna Eyjólfsdóttir, formaður, Páll Haukur Björnsson, aðalmaður og Ragnhildur Weisshappel, varamaður.

Anna Eyjólfsdóttir, formaður hefur tilkynnt að hún gefi kost á sér til endurkjörs.

Páll Haukur Björnsson hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér til endurkjörs.

Eftirtaldir stjórnarmenn og varamaður voru kjörnir til tveggja ára í apríl 2019 og lýkur þeirra kjörtímabili 2021: 

Hlynur Helgason, aðalmaður, Rúrí, aðalmaður, Starkaður Sigurðsson, aðlamaður og Freyja Eilíf, varamaður.

Þann  9. mars 2020 verður sent út endanlegt fundarboð með lista yfir þá félagsmenn sem gefa kost á sér til stjórnarstarfa fyrir SÍM næsta kjörtímabil.

The post Aðalfundur SÍM 2020 appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356