Það að tengjast listsköpun hefur gert lífið skemmtilegra, er sannfæring hjónanna, Þóreyjar Eyþórsdóttur og Kristjáns Baldurssonar.
Þar verður opnuð sýning með verkum eftir fjölda listamanna eða 27 alls. Íslenskum og erlendum. Öll verkin eru í eigu hjónanna Þóreyjar Eyþórsdóttur og Kristjáns Baldurssonar. Verkin hafa þau keypt gegnum 50 ára hjónaband.
Aðdragandinn að þessari samsýningu 26 listamanna má rekja til listviðburða sem hófust á Akureyri fyrir áratugum síðan.
Þórey stofnaði Gallerí AllraHanda 1986 sem varð fyrsta galleríið í Listagilinu á Akureyri. Þar voru haldnar fjölda einkasýninga. auk samsýningu m.a. í Gamla Lundi á Oddeyri Akureyri.
Árið 1996 var samsýning 39 myndlistarmann í Heklusalnum Gleráreyrum á Akureyri. Listamennirnir voru flestir frá Reykjavík og Akureyri. Margir þeirra eru höfundar verkanna í Gallerí Vest.

Þórey lauk námi frá Handíða og myndlistarskóla Íslands 1965, sem vefnaðarkennari. Eftirminnislegustu kennararnir voru, Björn Th. Björnsson og Valgerður Breem. Þau gáfu innsýn í heim listarinnar sem hefur verið ógleymanleg.
Verið velkomnin í Gallerí Vest Hagamel 67.
Sýningin mun verða opin frá kl. 15 til 18 fram til 1. nóvember. Lokað mánudaga og þriðjudaga.
The post Sýningin “Gerir lífið skemmtilegra” Opnar í Gallerí Vest, föstudaginn 18.október kl.17 appeared first on sím.