Sýningin var opnuð þann 29.júní sl. og stendur til 1.september . Sýningin er opin alla daga milli kl. 9 og 19
Hugmyndin að baki myndlistarverkefninu „ Ferð til eldjöklanna „ snýst um náttúrukrafta Vatnajökuls í samtali við sögu, menningu og umhverfi sveitarinnar við rætur jökulsins. Sýningarheitið er fengið úr Ferðabók Þorvaldar Thoroddsen sem ferðaðist og rannsakaði náttúru suðausturlands í lok 19.aldar. Fyrsti hlutinn birtist s.l. sumar í formi blaktandi myndfána sem settir voru upp tímabundið á völdum stöðum frá Skeiðarársandi að Suðursveit.

Seinni hluti verkefnisins verður sýndur og aðlagaður í þremur sölum Miklagarðs sem er gömul verbúð og sögufrægt hús á Höfn. Ísinn og jarðeldurinn undir yfirborði Vatnajökuls eru þar megin viðfangsefni listamannsins ásamt verkum innblásnum úr gömlum annálum og horfinni menningu héraðsins. Í austursal er m.a. að finna grafískt munstur Öræfajökuls málað með akrýllitum á 4 birkikrossviðsplötur en verkið er byggt á teikningu úr Sjónabók Jóns Einarssonar í Skaftafelli á síðari hluta 19.aldar. Litaskalinn spannar frá svörtu yfir í hvítt og öfugt eða úr myrkri í birtu eða jökli sem hverfur og kemur aftur á víxl í síendurteknu munstri upp og og niður. Dökkrauða línan fyrir miðju bindur verkið saman eins og rauður þráður í gegnum allar plöturnar. Það er kvikan sem kraumar undir yfirborðinu. Í miðsalnum lætur Halldór blekliti drjúpa oní jökulís sem hangir úr loftinu í léreftspokum sem bráðnar smá saman oná hvítar pappírsarkir fyrir neðan á stöplum og á gólfi. Með tímanum þornar pappírinn og verður að „ myndum „ eða afurð í einskonar myndlistarfjósi þar sem Vatnajökull er mjólkaður.

Halldór Ásgeirsson á langan feril að baki í myndlist en fyrstu verk hans birtust opinberlega um 1980 með innsetningum og gjörningum tengdum frumöflunum. Myndtákn urðu til með ósjálfráðri teikningu sem þróaðist áfram í málverk og veggmyndir. Upp úr 1990 fór Halldór að gera frekari tilraunir með lifandi efni er varð m.a. kveikjan að hraunbræðslu sem ummyndar hraunið við kólnun í svartgljáandi glerunga og töfrar fram óteljandi fyrirbæri sem verða uppspretta að nýjum myndverkum. Hið lifandi ferli verður stór hluti af sköpun og myndheimi listamannsins. Frá upphafi hafa jörðin-eldurinn, vatnið og vindarnir verið ráðandi öfl í margvíslegri myndlist Halldórs.

Halldór hefur búið og starfað á Íslandi, Frakklandi og Japan auk þess að hafa sett upp verk sín víða um heim á löngum listferli. Verkefnið er unnið í samstarfi við Menningarmiðstöð Hornafjarðar – Listasafn Svavars Guðnasonar og styrkt af Sass, Samtökum sveitarfélaga á Suðurlandi, Vinum Vatnajökuls og Myndlistarsjóði.
The post Halldór Ásgeirsson opnar sýningu í Miklagarði á Höfn í Hornafirði appeared first on sím.