Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Sigríður Huld Ingvarsdóttir opnar sýninguna Hugleiðingar um Upprunan í Mjólkurbúðinni – Sal myndlisarfélagasins á Akureyri 5.júlí

$
0
0

Verið velkomin á opnun þann 5. júlí kl 12:00 þar sem Sigríður Huld Ingvarsdóttir sýnir verk sem hún hefur unnið síðustu þrjú ár.
Gæruskinn, hestar, kindur, fuglar og náttúran spila stórt hlutverk í verkum hennar sem öll eru unnin með klassískum miðlum, olía á striga, vatnslitum og kolateikningar.

Sigríður Huld er fædd og uppalin í Bárðardal, Suður-Þingeyjarsýslu, sækir innblástur til fortíðarinnar úr sveitinni í sinni myndlist.
Hún útskrifaðist af fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri 2011 og árið eftir flutti hún til Svíþjóðar til að stunda nám við SARA The Swedish Academy of Art, sem þá var staðsett í Stokkhómi. Hún útskrifaðist þaðan vorið 2015 og hefur síðan búið og starfað í Uppsölum í Svíþjóð.
Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga, bæði á Íslandi og í Svíþjóð.

The post Sigríður Huld Ingvarsdóttir opnar sýninguna Hugleiðingar um Upprunan í Mjólkurbúðinni – Sal myndlisarfélagasins á Akureyri 5.júlí appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356