Hjúkrun í 100 ár er titill sýningar sem Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og frú Vigdís Finnbogadóttir opnuðu 19. júní sl. í Árbæjarsafni að viðstöddum fjölda hjúkrunarfræðinga. Sýningin er hluti af hátíðardagskrá í tilefni af 100 ára afmæli Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Á sýningunni er leitast við að kynna hjúkrun í fortíð, nútíð og framtíð og mun hún standa opin til 31. október 2019.

Saga hjúkrunar hefst í Reykjavík í byrjun 20. aldar þegar smitsjúkdómar og skortur á mat og almennu hreinlæti var helsta ógn við heilsu bæjarbúa. Henni lýkur í sérhæfðum og tæknivæddum heimi hjúkrunar dagsins í dag þegar hreyfingaleysi og allsnægtir ógna heilsu okkar. Grunnur hjúkrunar er óbreyttur og miðar að því að skapa sjúklingnum öruggt umhverfi og þannig hindra, stöðva eða lina afleiðingar sjúkdóma og slysa. Umgjörðin hefur breyst í takt við breytingar samfélagsins og þróunar í tækni og vísindum og í leiðsögninni verður athygli gesta beint að þessum breytingum og á þeim grunni verður vöngum velt yfir því hvert er stefnt.

Höfundur sýningar og sýningarstjóri er Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir.
Að sýningunni standa:
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Borgarsögusafn Reykjavíkur, Þjóðminjasafn Íslands, Lyfjafræðisafnið, Landspítali, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og Nýi Landspítalinn.
Nánari upplýsingar um sýninguna er að finna á vef safnsins
The post Hjúkrun í 100 ár – ný sýning í Árbæjarsafni appeared first on sím.