Föstudag 30. október kl. 12
Brynhildur Þorgeirsdóttir, Erla Þórarinsdóttir og Hulda Hákon ræða við gesti um sýninguna Kvennatími – Hér og nú þrjátíu árum síðar sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum.
Hugmyndin að baki sýningunni er að kalla aftur saman þær konur sem sýndu saman undir heitinu Hér og nú á Kjarvalsstöðum haustið 1985. Konurnar sem valdar voru til þátttöku árið 1985 voru margar rétt að hefja ferilinn en aðrar höfðu verið virkar í sýningarhaldi á liðnum áratug. Tilefni nýju sýningarinnar er 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna hér á landi. Líkt og á sýningunni 1985 er lögð áhersla á að sýna ný verk og var öllum konunum á Hér og nú boðin þátttaka en þær eru allar enn virkar í listsköpun og sýningarhaldi, utan tveggja sem eru látnar. Verkin á sýningunni spanna ýmsar aðferðir, miðla og hugmyndir.
Listamannaspjallið hefst kl. 12. Aðgangseyrir á sýninguna er kr. 1.400, ókeypis fyrir Menningarkortshafa.
Veitingastaðurinn á Kjarvalsstöðum býður upp á súputilboð í tilefni af leiðsögninni þar sem hægt er að fá súpu og heimabökuð brauð fyrir 1.000 kr.
The post Hádegisleiðsögn með listakonum Kvennatíma, föstudag 30. október kl. 12, Kjarvalsstöðum appeared first on sím.