Anna Guðjónsdóttir verður með leiðsögn um sýningu sína Hluti í stað heildar í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi.
Anna Guðjónsdóttir sýnir nýtt verk í mörgum hlutum sem tekur yfir allan sýningarsalinn. Listsköpun Önnu á rætur í málverkahefðinni þar sem tekist er á við sígildar spurningar um mörk tvívíðs, málaðs flatar og þrívíðs, raunverulegs rýmis – mörk frummyndar og eftirmyndar. Anna kallar fram hugmyndir sínar með tilvísun í landslag og byggingarlist ásamt því að styðjast við form sýningarskápa. Á sýningunni Hluti í stað heildar umbreytist sýningarsalurinn í nokkurs konar sýningarskáp sem gestir ganga inn í, umvafðir málverkum sem spegla rýmið sjálft og opna jafnframt inn í aðra og ófyrirséða heima.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur
The post Leiðsögn listamanns: Anna Guðjónsdóttir Sunnudag 19. maí kl. 15.00 í Hafnarhúsi appeared first on sím.