Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Handrit: Leiðsögn sýningarstjóra

$
0
0
Handrit: Leiðsögn sýningarstjóra
Fimmtudag 17. janúar kl. 20.00 í Hafnarhúsi
Leiðsögn Leifs Ýmis Eyjólfssonar um sýninguna Handrit.

Sýning Leifs Ýmis í D-sal byggist á safni orða, texta og setningabrota sem hann hefur haldið til haga og byggt upp síðustu ár. Hann hefur sérstakt dálæti á því sem kemur daglega fyrir í samskiptum milli fólks eða því sem maður hugsar með sjálfum sér án þess að því fylgi sérstök merking. Þetta er tungutak millibilsástands, íhugunar eða hrein uppfylling í þagnir. Leifur Ýmir setur fram handrit sitt handskrifað og innbrennt í fjölmargar leirplötur sem stillt er upp um alla sýningarveggi.

Leifur Ýmir nam við Myndlistaskólann í Reykjavík, Keramík og mótun auk fornáms, 2008-2009. Hann útskrifaðist frá Myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2013.

Leifur Ýmir er 35. listamaðurinn sem sýnir í sýningarröð í D-salar sem hóf göngu sína árið 2007.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.

The post Handrit: Leiðsögn sýningarstjóra appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356