Róf: Leiðsögn sýningarstjóra Sunnudag 13. janúar kl. 15.00 á Kjarvalsstöðum |
Markús Þór Andrésson, sýningarstjóri og deildarstjóri sýninga og miðlunar, heldur leiðsögn um sýninguna Róf á Kjarvalsstöðum. Yfirlitssýning á verkum Haraldar Jónssonar, Róf, dregur fram sérstöðu listamannsins í íslensku listalífi. Ferill hans er fjölbreyttur og miðlarnir ólíkir en rauði þráðurinn er tilraun til þess að eima tilveruna. Í þrjá áratugi hefur Haraldur skoðað hvernig við greinum umhverfi okkar, vinnum úr upplifun, tjáum okkur og eigum í samskiptum hvert við annað. Hver eru tengsl manns og rýmis, vitundar og umhverfis? Nánar Blóðnám Gestum er boðið í blóðnám sama dag frá kl. 14-16.00. Blóðnám er verk á sýningu Haraldar Jónssonar, Róf. Nánar Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur. |
The post Róf: Leiðsögn sýningarstjóra appeared first on sím.