Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Opnun sýningar Kristínar E. Guðjónsdóttur í Gallerí Gróttu 29.11.

$
0
0

Hjartanlega velkomin(n) á opnun sýningar Kristínar E. Guðjónsdóttur – HULINN HEIMUR – fimmtudaginn 29. nóvember kl. 17.00

Í abstrakt verkinu birtast myndir tilfinninga sem dagsdaglega eru okkur huldar. Litir, form og formleysi, túlka hér orku þá sem býr hið innra.

En allt byggir þetta á persónulegri upplifun.

Kristín E. Guðjónsdóttir nam myndlist hjá myndlistarkonunni og kennaranum Margréti Zóphóníasdóttur. Hún hefur sótt námskeið hjá

Bjarna Sigurbjörnssyni listamanni og kennara, nám hjá Ignatius í Kaupmannahöfn og hjá Anne Juul Cristhophersen í Danmörku.

Árið 2016 sýndi Kristín verk sín fyrst opinberlega eftir að hafa um tíma tekið reglulega á móti gestum á heimili sínu á Seltjarnarnesi.

Fyrsta sýningin var í Löngubúð á Djúpavogi í apríl 2016, rúmu ári síðar eða í október 2017 hjá Inni og Úti arkitektum og svo fyrr á árinu í Lágafellslaug í Mosfellsbæ 2018.

Vertu velkomin á sýningu Kristínar í Gallerí Gróttu á Seltjarnarnesi.

The post Opnun sýningar Kristínar E. Guðjónsdóttur í Gallerí Gróttu 29.11. appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356