Verk í vinnslu | Mánuður myndlistar
Opið vinnurými listamanna í Gerðubergi 1.- 31. október 2018
__________________________________________________________________________________
Hópur ungs myndlistafólks mun dvelja í sýningarsal Gerðubergs og vinna að myndlist sinni í tilefni af mánuði myndlistar, októbermánuði. Myndlist er fjölbreytt starf, þáttakendur verkefnisins eiga hver sína vinnuaðferð og eru sem stendur á ólíkum stað í eigin ferli.
Rýmið verður opið safngestum og því er tækifæri til að kynnast ferli ólíkra myndlistarmanna og skoða myndlist sem er enn verk í vinnslu.
Áður en myndlist er hengd upp í sýningarrými, skrásett á blaðsíður í bók eða flutt í þaulæfðum gjörningi þarf ýmislegt að gerast fyrst. Tilraunir geta mistekist – en eru mistökin ef til vill efni í nýtt verk? Gott samtal við gamlan vin eða splunkunýjan skapar hugmynd sem leggur ferlinu lið, svarar áríðandi spurningu og býr til nýjar spurningar. Nú liggja allt í einu tvö verk, hlið við hlið fyrir tilviljun. Hvaða hugmyndir verða til á milli þeirra?
Til að myndlist verði til þarf tíma og pláss. Tíma til að rannsaka, pláss í höfðinu til að hugsa, pláss fyrir stól fyrir líkama til að sitja í, pláss á hörðum diski, pláss fyrir sull. Tíma til að skipta um skoðun og byrja uppá nýtt.
Verkefnið er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins, Sýnt og rætt og Sambands íslenskra myndlistarmanna.
Listamennirnir eru:
Andrea Elín Vilhjálmsdóttir
Auður Lóa Guðnadóttir
Bára Bjarnadóttir
Dýrfinna Benita Garðarsdóttir
Eva Bjarnadóttir
Ólöf Benediktsdóttir
Sigrún Gyða Sveinsdóttir
Sophie Durand
Vala Jónsdóttir
Wiola Ujazdowska
Meira um verkefnið á heimasíðu safnsins: http://www.borgarbokasafn.is/is/vidburdir/verk-i-vinnslu-syning og á heimasíðu Mánaðar myndlistar: www.manudurmyndlistar.is
Hér má finna viðburðinn á Facebook
The post Verk í vinnslu | Sýning í Gerðubergi appeared first on sím.