Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

SÍM SALURINN 2019 – OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR

$
0
0

Kæru félagsmenn,

SÍM auglýsir nú eftir umsóknum frá félagsmönnum sem hafa áhuga á að halda sýningu í SÍM salnum, Hafnarstræti 16, á næstkomandi ári. Tímabilið sem um er að ræða er janúar – nóvember 2019.

Í SÍM eru yfir 850 meðlimir, og gaman væri að sjá í salnum þverskurð af þeim fjölbreytta hópi sem félagið samanstendur af. Því viljum við hvetja unga sem aldna til að sækja um, og með sem fjölbreyttustum verkefnum, t.d. stendur ekkert í vegi fyrir því að listamenn taki sig saman og skipuleggi samsýningu.

Athugið þó að sýningar þurfa að vera þess eðlis að hægt sé að nýta salinn í fundarhöld og samkomur meðan á sýningum stendur (t.d. má ekki þekja gólfið þannig að ekki sé hægt að ganga um eða koma fyrir stólum).

Sjá má nánari upplýsingar um SÍM salinn hér: https://sim.is/um-sim/sim-salurinn/

Félagsmenn eru hvattir til þess að senda inn umsókn um sýningarhald; að hámarki eina blaðsíðu af texta, 3-5 myndir af verkum og ósk um sýningartíma. Umsóknir berist í tölvupósti til: sim@sim.is, en frestur til að skila inn umsóknum rennur út í lok mánudags 22. október 2018.

Sýningarnefnd mun fara yfir umsóknir og munu svör berast viku eftir lok umsóknarfrests.

The post SÍM SALURINN 2019 – OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356