(ENGLISH BELOW)
Laugardaginn 10. mars kl. 13-15 verður haldin ljósmyndasmiðja þar sem unnið verður með sjálfsmyndir og ímyndir í tengslum við sýninguna Líkamleiki í Gerðarsafni.
Í smiðjunni verður skoðað á hvaða hátt sjálfsmyndir eða sjálfur (en. selfies) eru notaðar til þess að varpa ljósi á félagslegt umhverfi okkar, stöðu í samfélaginu og hvernig við skilgreinum okkur eftir þjóðerni. Unnið verður með sjálfur á mismunandi hátt og gefst þátttakendum meðal annars tækifæri á að taka sjálfsmynd í ljósmyndastúdíói sem sett verður upp á neðri hæð safnsins.
Smiðjan verður óháð tungumáli og er ætluð allri fjölskyldunni. Leiðbeinendur tala íslensku, arabísku, frönsku, ensku og þýsku og er markmiðið að byggja upp samskipti þvert á tungumál og menningarheima. Soumia I. Georgsdóttir ráðgjafi fyrir innflytjendur er sérstakur verkefnisstjóri smiðjanna en sjálfsmyndasmiðjan er önnur af fjórum listsmiðjum sem hlaut styrk frá nefnd um fullveldisafmæli Íslands. Markmiðið með smiðjunni að bjóða nýja Íslendinga velkomna og byggja brú milli ólíkra menningarheima í krafti myndlistar.
Viðburðurinn er liður í Fjölskyldustundum Menningarhúsanna í Kópavogi sem fara fram á hverjum laugardegi á Bókasafni Kópavogs, Gerðarsafni, Héraðsskjalasafni Kópavogs, Náttúrufræðistofu eða í Salnum.
Dagskráin er öllum opin og aðgangur ókeypis.
Embody | The Language of Selfies
Join us in a multilingual Selfie workshop for all families, Saturday 10. March from 1-3 p.m. at Gerðarsafn – Kópavogur Art Museum. Inspiration will be drawn from Embody, the current exhibition in the museum. A study of different selfies will be made and a we look at how it can be used to express oneself, the environment or social position. A professional photo studio will be set up in the museum, giving participants a chance to create a different kind of selfie.
The languages of the workshop will be Icelandic, Arabic, French, English and German and the focus is to build up communication between different cultures and languages through creative work. Soumia I. Georgsdóttir, a counselor for immigrants is the project manager of the multilingual workshops in Gerðarsafn – Kópavogur Art Museum.
Everyone is welcome and the workshop is free of charge. Granted by Centenary of Icelandic independence and sovereignty.
The post Gerarsafn | Líkamleiki | Tungumál sjálfsmynda appeared first on sím.