Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Myrkraverk: Leiðsögn listamanna 10.03. á Kjarvalsstöðum

$
0
0

Myrkraverk: Leiðsögn listamanna
Laugardag 10. mars kl. 14.00 á Kjarvalsstöðum

Listamennirnir Jóhanna Bogadóttir og Sigurður Ámundason segja frá verkum sínum á sýningunni Myrkraverk á Kjarvalsstöðum.

Á sýningunni eru verk listamanna sem hafa fengið innblástur úr þjóðsögum og ævintýrum eða skapað sinn eigin huliðsheim. Hvort tveggja endurspeglar mannlega tilvist, samskipti, tilfinningar og hugarástand.

Sýningin er uppfull af dularfullum og spennandi verkum sem kveikja á ímyndunaraflinu.

Hér mætast ólíkar kynslóðir listamanna:
Alfreð Flóki (1938–1987)
Ásta Sigurðardóttir (1930-1971)
Jóhanna Bogadóttir (1944)
Kristinn Pétursson (1896–1981)
Sigga Björg Sigurðardóttir (1977)
Sigurður Ámundason (1986)

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.

The post Myrkraverk: Leiðsögn listamanna 10.03. á Kjarvalsstöðum appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356