Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

FUNDARBOÐ: AÐALFUNDUR SÍM

$
0
0

AÐALFUNDUR SAMBANDS ÍSLENSKRA MYNDLISTARMANNA

verður haldinn 26. maí 2018 í SIM – Húsinu, Hafnarstræti 16, 

kl. 13:00 – 16:00

 

Dagskrá aðalfundar:
1.  Skýrsla stjórnar
2.  Reikningar
3.  Stjórnarkosning
4.  Kosning eins fulltrúa í sambandsráð sbr. 9. gr.
5.  Kosning félagslegs skoðunarmanns og endurskoðanda til eins árs
6.  Lagabreytingar
7.  Ákvörðun félagsgjalda
8.  Önnur mál

Allar samþykktir á aðalfundi verða að hljóta einfaldan meirihluta greiddra atkvæða.

Stjórnin skal kosin rafrænt og eru allir skuldlausir félagsmenn sambandsins kjörgengir.

Skrifleg tilkynning um framboð til stjórnarstarfa skal hafa borist skrifstofu SÍM (sim@sim.is) eigi síðar en kl. 16:00, mánudaginn 26. mars 2018. 

Eftirtaldir stjórnarmenn og formaður SÍM voru kjörnir til tveggja ára í apríl 2016 og lýkur þeirra kjörtímabili á þessum aðalfundi.

Jóna Hlíf Halldórsdóttir, formaður, Steingrímur Eyfjörð, aðalmaður, Eirún Sigurðardóttir, aðalmaður og Klængur Gunnarsson, varmaður.

Formaður SÍM, Jóna Hlíf Halldórsdóttir, gefur ekki kost á sér til endurkjörs.

Eirún Sigurðardóttir, varaformaður SÍM, gefur ekki kost á sér til endurkjörs.

Eftirtaldir stjórnarmenn og varamaður voru kjörnir til tveggja ára í apríl 2017 og lýkur þeirra kjörtímabili 2019:

Anna Eyjólfsdóttir og Starkaður Sigurðarson í sæti aðalmanna í stjórn og Erla Þórarinsdóttir í sæti varamanns.

Þann  9. apríl verður sent út endanlegt fundarboð með lista yfir þá félagsmenn sem gefa kost á sér til stjórnarstarfa fyrir SÍM næsta kjörtímabil.

Bestu kveðjur,

Ingibjörg Gunnlagusdóttir, framkvæmdastjóri

The post FUNDARBOÐ: AÐALFUNDUR SÍM appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356