Verið velkomin á uppskeruhátíð Dags Myndlistar 2017!
Laugardaginn 28.okt frá 18:00 – 22:00 í SÍM húsinu.
Eins og þið vitið stendur SÍM fyrir Degi Myndlistar ár hvert.
Laugardaginn 28.október ætla því SÍM og Dagur Myndlistar að bjóða ykkur til hátíðar í SÍM húsinu við Hafnarstræti 16.
Dagskráin verður fjölbreytt og skemmtileg:
Afhending Tilberans
Tilberinn er viðurkenning sem veitt verður árlega þeim sem þykja hafa sýnt útsjónarsemi, dugnað, hugrekki og staðfestu á sviði myndlistar og auðgað þannig menningar- og listalíf landsins. Að þessu sinni verður Tilberinn veittur á hátíð Dags Myndlistar 2017
Marteinn Sindri tónlistarmaður stígur á stokk (www.marteinnsindri.com)
Þorsteinn Eyfjörð þeytir skífum
Gjörningadúóið Berglind & Rúnar sjá fyrir veitingum á sinn einstaka og frumlega hátt
Nemendur Listaháskólans sýna gjörninga
Nýtt tölublað STARA kemur út
Vín, bjóri og Himbrimi Gin & Tonic í boði.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Dagur Myndlistar – allan október 2017
The post Uppskeruhátíð Dags Myndlistar 2017, laugardaginn 28.okt! appeared first on sím.