Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Vilt þú taka þátt? Jólamarkaður PopUp Verzlunar – hönnun, myndlist, tónlist, upplifun & skemmtun.

$
0
0

           

(Engish version below)

Ertu með spennandi hönnunarvöru / list / tónlist sem þú vilt kynna?

PopUp Verzlun leitar nú að þátttakendum fyrir jólamarkaðinn sem verður haldinn í porti Listasafni Reykjavikur, Hafnarhúsi laugardaginn 9 des. 2017. Opnunartími verður frá klukkan 11 – 17.

Breyting varð á sniði PopUp Verzlunar 2015 og opnað var fyrir þátttakendur á sviði myndlistar og tónlistar. Vel tókst til og mun PopUp halda því sniði. Tónlistarfólk er hvatt til að sækja um pláss til að selja tónlistina sína, varning og jafnvel spila á deginum. Myndlistarfólk sem hefur til sölu list af einhverju tagi er einnig hvatt til að sækja um.

Sækja verður um þátttöku á popup.verzlun@gmail.com. Með umsókn þarf að fylgja mynd eða hlekkur á vörur / list / tónlist ásamt nafni merkis og fullu nafni hönnuðar / listamanns / tónlistarmanns, mikilvægt er að símanúmer og netfang fylgi umsókn. Þátttakendur eru valdir af kostgæfni í takt við stefnu PopUp Verzlunar.

Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.


Hlýja,

PopUp Teymið.

————————————————-
 

Hvað er PopUp Verzlun?

PopUp er farandverzlun stofnuð sem vettvangur fyrir hönnuði til að selja og kynna sínar vörur. PopUp Verzlunin býr sér til nýtt heimili á nýjum stað í markaðsformi í hvert sinn sem hún opnar dyr sínar með nýrri samsetningu vörumerkja. Verzlunin er því aldrei með sama sniði og mótar sig að hverjum stað, hverju sinni.

PopUp verzlun vandar val hönnuða og vörumerkja við þátttöku og leggur ríka áherslu á að vörur séu vandaðar og sýni frumleika, að þær bjóði uppá nýjungar á markaði eða standast stefnu og strauma samtímans. Ekki eru sett nein skilyrði um menntun í faginu við þátttöku, en PopUp teymið áskilur sér rétt til að greina á milli tískuhönnunar, hönnunar & handverks.

——————————————–

Designers, artists and musicians are welcome to apply. Applications need to include a photo or link to their products, art or music, full name and a phone number. Apply to; popup.verzlun@gmail.com

Do you have an exciting product / art / music you want to sell?

PopUp Verzlun is now open for applications for the yearly X-Mas designersmarket. The market will take place in Reykjavik Art Museum, Hafnarhús Saturday the 9th of dec. 2017. Opening hours will be from 11 – 17.

Note that the number of participants is limited.

Warmth,

PopUp Team

The post Vilt þú taka þátt? Jólamarkaður PopUp Verzlunar – hönnun, myndlist, tónlist, upplifun & skemmtun. appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356