Laugardaginn 5. september, kl. 13:00 til 15:00, verður haldinn félagsfundur í SÍM- salnum,
Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík.
Dagskrá fundar:
13:00
/// Kynning á nýrri heimsíðu SÍM
Elisabet Brynhildardóttir, hönnuður síðunnar.
13:03
/// Kynning á BHM – Bandalagi Háskólamanna
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, framkvædastjóri SÍM fer yfir það helsta sem felst í því að vera innan vébanda BHM.
14:00
/// STARA
4. tölublað STARA kemur út og er þema blaðsins Feneyjatvíæringurinn.
Björg Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri KÍM fjallar um ferlið við val á framlagi Íslands til Feneyjatvíæringsins.
Hlynur Helgasson skrifar áhugaverða og ýtarlega grein um Listina, samfélagið og tjáningarfrelsið.
Jón Proppé fjallar um samsýninguna Listería sem var sett upp í ókláruðu safnhúsi á Nesi.
Vinnustofuviðtal við Eygló Harðardóttur, en hún er í vinnustofu SÍM í Súðarvogi.
Guðni Tómasson fjallar um verkið Moska eftir Christoph Büchel, sem er framlag Íslands 2015 til Feneyjatvíæringsins.
14:20
/// MANELE DAM sýningarstjóri verður með kynningu.
SÍM fékk styrk frá KKNORD 2015 til þess að bjóða myndlistarmönnum frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum til dvalar í Gestavinnustofum SÍM.
Árið 2015 hefur SÍM ákveðið að vinna með Nýlistasafninu og Birtu Guðjónsdóttur sýningarstjóra við val á listamönnum og sýningarstjórum.
Malene Dam, sýningarstjóri frá Danmörku sem dvelur hjá okkur í september, ætlar að halda stutta kynningu um sín störf.
Félagsmönnum gefst tækifæri að heilsa upp á Malene og skrá sig á vinnustofuheimsóknar lista.
14:45
/// VIÐ BORGUM MYNDLISTARMÖNNUM
Jóna Hlíf Halldórsdóttir, formaður SÍM segir frá herferðinni “Við borgum myndlistarmönnum” sem er í undirbúningi hjá SÍM
/// Önnur mál
Félagsmönnum gefst tækifæri til að koma hugmyndum sínum á framfæri til stjórnar SÍM, ræða hagsmunamál sín og spyrja spurninga.
Léttar veitingar í boði.
—
Með kveðju
Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Formaður