Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Uppskeruhátíð í Hönnunarsafninu laugardaginn 30. sept

$
0
0

Verið velkomin á uppskeruhátíð Nordic Angan, laugardaginn 30. september milli 12.00 – 17.00.

Í sumar hafa Þær stöllur hjá Nordic Angan, Sonja Bent og Elín Hrund Þorgeirsdóttir, verið með sýningar- og vinnuaðstöðu í anddyri Hönnunarsafnsins.

Þar hafa þær unnið að rannsóknarverkefni sem felur í sér að kortleggja ilmi í íslenskri náttúru með því að eima jurtir.

Samhliða kortlagningunni hafa þær nýtt afurðirnar í hönnun og framleiðslu á handgerðum reykelsum, kertum, ilmmyndum, plakötum og veggfóðri.

Þessar afurðir verða til sölu á uppskeruhátíðinni og Sonja og Elín munu fræða gesti um verkefnið og bjóða upp á blóma smakk.

The post Uppskeruhátíð í Hönnunarsafninu laugardaginn 30. sept appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356