Leiðsögn: List fyrir fólkið
Sunnudag 1. október kl. 15.00 í Ásmundarsafni |
Leiðsögn um sýninguna List fyrir fólkið sem er yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara. Á sýningunni er sjónum beint að öllum ferli listamannsins, allt frá tréskurðarnámi hjá Ríkarði Jónssyni og til síðustu ára listamannsins. Sýnd eru verk unnin í ýmis efni þar á meðal verk höggvin úr tré, steinsteypu og brons. Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur. |
The post Leiðsögn: List fyrir fólkið, sunnudag 1. október kl. 15.00 í Ásmundarsafni appeared first on sím.