Sýning Selmu Hreggviðsdóttur Leyfist mér úr fjarlægð? opnar fimmtudaginn 7. september kl 18:00 í SÍM SALNUM, Hafnarstræti 16.
Efnið er uppleyst og eftir standa rafrænar línur aðgengilegar almenningi. Frá minningum til ásýndar steypu verður sýningin til í flökti á milli hins kalda steingerða og hins dúnmjúka, persónulega mats á staðnum Reykjavík. Hér renni ég fyrir augnablikum frá stöðum sem voru mér kunnuglegir.
Selma Hreggviðsdóttir stundaði nám við LHÍ frá 2007 til 2010 og lauk meistarnámi frá Glasgow School of Art 2014 þar sem hún hefur verið búsett síðan. Á meðal undanfarinna sýninga hennar eru Deus Ex Machina í Civic Room Glasgow með Katrina Vallé, Reflective Surface í Ausstellungsraum Klingental og Peacetime Resistance, Baerum Kunsthall.
The post Leyfist mér úr fjarlægð? opnar í SÍM salnum 7. september appeared first on sím.