Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Happy People – Opnun á laugardaginn í Nýlistasafninu

$
0
0

(English below)

Sýningin HAPPY PEOPLE eftir Arnar Ásgeirsson, opnar næstkomandi laugardag kl. 17:00 í Nýlistasafninu. Marshallhúsinu.

Dularfullum skúlptúrum hefur verið komið fyrir í framúrstefnulegum vatnspípum og bíða þess að þú, kæri gestur, komir og reykir þá. Neytir þeirra og andir þeim að þér með ávaxtakeim.

Reykingasermóníurnar eru tilraunir til að njóta listar á nýjan hátt. Vikulega verður verkum í pípunum skipt út og með því myndast flæðandi hringrás í rýminu. Á hverri reykingasermóníu verður dagskrá lifandi gjörninga og viðburða.

Við opnun sýningarinnar býðst gestum að reykja verk eftir Hrafnhildi Helgadóttur, Mehraneh Atashi, Eggert Pétursson, Loidys Carnero og Hrein Friðfinnsson.

Á fyrstu reykingasermóníunni verður einnig fluttur þokukenndur gjörningur eftir Darra Lorenzen.

Fylgist vel með vikulegum uppfærslum fyrir komandi reykingasermóníur HAPPY PEOPLE

Myndlistarmenn sem eiga verk á sýningunni eru stór hópur íslenskra og erlendra listamanna
Anna Hrund Másdóttir (IS), Brynhildur Þorgeirsdóttir (IS), Darri Lorenzen (IS), David Bernstein (US), Eggert Pétursson (IS), Eloise Bonneviot (FR), Geirþrúður Einarsdóttir (IS), Guðmundur Thoroddsen (IS), Gustav Wideberg (SE), Gylfi Sigurðsson (IS), Hrafnhildur Helgadóttir (IS), Hildigunnur Birgisdóttir (IS), Hreinn Friðfinnsson (IS), Juan-pedro Fabra Guemberena (UY/SE), Lars TCF Holdhus (NO), Loidys Carnero (CU), Mehraneh Atashi (IR), Yaima Carrazana (CU), Yazan Khalili (PS), Yosuke Amemiya (JP), Žilvinas Landzbergas (LT).

Hér má sjá viðburðinn á samfélagsmiðlum

Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við Arnar Ásgeirsson í síma 863-2116, eða senda tölvupóst á netfangið nylo@nylo.is

///

Let’s come together, let’s enjoy.
Let’s inhale, deep into our lungs.
Exhale into space, and then take a moment to contemplate.

Dear friends!

We welcome you to Happy People – a smoking lounge offering a selection of objects and artwork that have been selected and created for you to interact with.

Mysterious sculptures have been inserted into funky pipes for you to smoke, consume and inhale fruity flavours. This smoking experience is an attempt for new ways to experience art.

During the exhibition objects by participating artists will be picked out of the space and inserted into pipes to be smoked, creating a flowing rotation. Each smoking ceremony will be supported by live acts and performances.

Stay tuned for upcoming events on social media and the museum’s website!

Starring: Anna Hrund Másdóttir (IS), Brynhildur Þorgeirsdóttir (IS), Darri Lorenzen (IS), David Bernstein (US), Eggert Pétursson (IS), Eloise Bonneviot (FR), Geirþrúður Einarsdóttir (IS), Guðmundur Thoroddsen (IS), Gustav Wideberg (SE), Gylfi Sigurðsson (IS), Hrafnhildur Helgadóttir (IS), Hildigunnur Birgisdóttir (IS), Hreinn Friðfinnsson (IS), Juan-pedro Fabra Guemberena (UY/SE), Lars TCF Holdhus (NO), Loidys Carnero (CU), Mehraneh Atashi (IR), Yaima Carrazana (CU), Yazan Khalili (PS), Yosuke Amemiya (JP), Žilvinas Landzbergas (LT).

Graphic by Arnar Ásgeirsson (IS) & Michel Keppel (NL).

The post Happy People – Opnun á laugardaginn í Nýlistasafninu appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356