Listasafnið kallaði nýverið eftir tillögum frá myndlistarmönnum vegna innkaupa fyrir safnið og sýningahalds haustið 2017. Það bárust tillögur frá 55 aðilum að þessu sinni, margar í mjög háum gæðaflokki.
Listráð Listasafns ASÍ 2017-18, sem í eiga sæti sýningarstjórarnir Dorothée Kirch, Heiðar Kári Rannversson og forstöðumaður safnsins Elísabet Gunnarsdóttir, kom saman 18. maí s.l. og fór yfir tillögurnar sem bárust. Ákveðið var að kaupa verk af Sigurði Guðjónssyni að þessu sinni og bjóða honum jafnframt til samstarfs um sýningahald n.k. haust.
Sigurður er fæddur 1975 og lærði í Vín, Reykjavík og Kaupmannahöfn. Vídeóverk hans vöktu strax athygli þegar þau komu fyrst fram á sjónarsviðið um aldamótin síðustu. Hann hefur unnið jafnt og þétt að því að víkka út sköpunarsviðið og vinnur með miðilinn – stundum einn og stundum í samstarfi við aðra – af öryggi en jafnframt leitandi dýpt.
Við valið hafði listráðið nýja innkaupastefnu safnsins að leiðarljósi, en hún tekur mið af því menntunar- og miðlunarátaki sem safnið mun ráðast í með sýningarhaldi víða um land næstu misserin. Á komandi árum verður unnið að því að kaupa markvisst inn ný verk í safneignina þar sem viðfangsefni og/eða miðill endurspeglar tíðarandann með afgerandi hætti.
Verk Sigurðar eru vídeóverk í fremsta flokki og gefa jafnframt góða innsýn í möguleika miðilsins bæði eins og sér, en einnig í samspili við aðra miðla.
Samhliða innkaupum og sýningarhaldi víða um land vinnur rekstrarstjórn safnsins að því að finna framtíðarlausn á húsnæðismálum safnsins. Listasafn ASÍ sér fram á gefandi tíma í samstarfi við listafólk og listunnendur víða um land á komandi misserum.
The post Listasafn ASÍ velur Sigurð Guðjónsson myndlistarmann til samstarfs appeared first on sím.