SÍM hefur tekið á leigu nýtt húsnæði fyrir vinnustofur og geymslur félagsmanna í Auðbrekku 1, Kópavogi.
Í húsnæðinu eru 8 vinnustofur og geymslur í ca. 300 m2. Gott aðgengi er að húsnæðinu.
Hægt er að leigja lokaðar geymslur, ca. 10 -11 m2, á kr. 1.450.- per m2, þær eru þá langar og mjóar.
Einnig er hægt að hlaða kössum á bretti og kostar þá brettið kr. 2.500.- á mánuði.
Vinnustofurnar eru stórar og bjartar, en lofthæð er 2,8 metrar.
Fermetraverðið fyrir nýju vinnustofurnar er kr. 1.600.- , sem er kostnaðarverð.
Tvær vinnustofur eru lausar, önnur 44 m2 og hin 54 m2.
Þeir sem hafa áhuga á að sækja um vinnustofu eða geymslu í Auðbrekku 1,
geta fyllt út meðfylgjandi umsókn og sent til SÍM sem fyrst á netfangið : ingibjorg@sim.is
Umsóknareyðublað Auðbrekka 1 2017
The post Tvær stórar vinnustofur í Auðbrekku appeared first on sím.