Sunnudaginn 12. mars kl. 15:00 taka þær systur Sara og Svanhildur Vilbergsdætur á móti gestum á sýningu sinni ÚLFATÍMI í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duus Safnahúsum. Titill sýningarinnar er sóttur í smiðju sænska kvikmyndaleikstjórans Ingmar Bergman sem talaði um Úlfatímann sem tímann milli nætur og dagrenningar, þegar flestir deyja, svefninn sé hvað dýpstur og martraðir sem raunverulegastar. Þá sæki mestur ótti að þeim sem ekki geti sofið og bæði draugar og drýsildjöflar fara mikinn.
Þær systur eru þekktar fyrir litskrúðug verk sín sem segja endalausar sögur, bæði þessa heims og annars og nú bregður við nýjum tóni sem ekki hefur sést áður. Sara og Svanhildur mála sem fyrr saman, sömu verkin og á sýningunni Úlfatími má sjá 20 olíuverk sem flest eru ný og hafa ekki sést áður. Sýningin stendur til 23. apríl. Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson.
Leiðsögnin er á dagskrá Safnahelgar á Suðurnesjum sem stendur laugardag og sunnudag með ókeypis aðgangi að söfnum og fjölbreyttri dagskrá. Nánari upplýsingar á safnahelgi.is
The post Systraleiðsögn í Listasafni Reykjanesbæjar appeared first on sím.