Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Berlinde De Bruyckere: Leiðsögn og sýningarlok

$
0
0

SUNNUDAGSLEIÐSÖGN: BERLINDE DE BRUYCKERE
Leiðsögn með safnstjóra Listasafns Íslands á lokadegi sýningar, sunnudaginn 4. september kl.14.

Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands, leiðir gesti um sýninguna sunnudaginn 4. september klukkan 14:00. Síðustu forvöð að fræðast um þessa merkilegu listakonu og verk hennar. Sýningunni lýkur sama dag.

Ferill belgísku myndlistarkonunnar Berlinde De Bruyckere hefur spannað þrjá áratugi en hún náði alþjóðlegri hylli á Feneyjatvíæringnum árið 2003, þar sem skúlptúrar hennar voru sýndir í ítalska skálanum. Á sýningunni í Listasafni Íslands eru skúlptúrar og teikningar frá síðustu fimmtán árum en verkin fæðast sem raunsæjar, anatómískar stúdíur undir áhrifum frá flæmska skólanum og þýsku endurreisninni sem hafa haft djúpstæð áhrif á verk hennar, sem og frá ímyndunarafli og ljóðrænu næmi hennar sjálfrar.

Sýningin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík og Listasafns Íslands.

Nánar um sýninguna

The post Berlinde De Bruyckere: Leiðsögn og sýningarlok appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356