Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Gyðjur -Konumyndir Sigurjóns Ólafssonar. Síðasta sýningarhelgi.

$
0
0

Sýningunni Gyðjur í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar lýkur sunnudaginn 28. ágúst. Opið alla daga nema mánudaga kl. 14-17.

Portrett af konum eftir Sigurjón Ólafsson ásamt öðrum verkum hans, höggvin í stein eða tré, þar sem hinni kvenlegu ímynd – das ewig weibliche – er lýst og hún tekur á sig mynd gyðjunnar. Sýningin er í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá því að konur fengu kosningar­rétt á Íslandi.
Sigurjón Ólafsson er meðal þekktustu portrett­listamanna Norðurlanda og eftir hann liggja rúmlega 200 andlits­myndir. Flestar eru þær af karlmönnum í ábyrgðar­stöðum í þjóð­félaginu, en kven­portrett Sigurjóns eru síður þekkt, að undan­skilinni myndinni sem hann gerði af móður sinni á1938. Fyrir þá mynd hlaut Sigurjón hin eftir­sóttu dönsku Eckersberg verðlaun árið 1939. Ríkis­listasöfn þriggja Norðurlanda eiga eintök af þeirri mynd.

The post Gyðjur -Konumyndir Sigurjóns Ólafssonar. Síðasta sýningarhelgi. appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356