Quantcast
Channel: sím
Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356

Óskað eftir umsóknum í tilraunaverkefni SÍM 2017

$
0
0

Stjórn SÍM fór af stað með tilraunaverkefni árið 2016 til tveggja ára, þar sem  SÍM veitir tveimur ungum félagsmönnum tækifæri á að dvelja einn mánuð frítt í gestavinnustofu SÍM í Berlín. Þeir fá einnig tækifæri til að segja frá dvöl sinni og listsköpun í STARA.

Frá árinu 2010 hefur SÍM haft Gestavinnustofu í Berlín á leigu fyrir félagsmenn SÍM. Hugmyndin var að gefa félagsmönnum tækifæri á að dvelja í stórborginni Berlín og vinna að list sinni. Gestavinnustofan er á fimmtu hæð í fjölbýlishúsi í Neue Bahnhofstrasse 27, í Friedrichshain í austurhluta Berlínar.

STARA er myndlistarit sem leitast við að efla umræðu og þekkingu á myndlist ásamt því að segja frá starfsemi SÍM. STARA er bæði á íslensku og ensku, og höfðar jafnt til fagfólks sem og áhugafólks um myndlist. STARA mun koma út tvisar á árinu 2017 og verður prentað í 500 eintökum og dreift frítt.

Úthlutað verður mánuðina mars og september 2017. Þeir sem fá  úthlutað geta sótt um dvalarstyrk frá Muggi og ferðastyrk frá Myndstefi.

Valnefnd mun fara yfir umsóknir og úthlutað verður 15. september 2016. Valnefndin áskilur sér rétt til þess að velja og hafna umsóknum án sérstaks rökstuðnings eða útskýringa.

Umsóknarfrestur er 10. september 2016 og sendist á sim@sim.is

 

Skilyrði fyrir umsókn:

Umsækjandi verður að vera yngri en 35 ára.

Skila verður tilögu að verkefni, þar sem fram kemur hvað umsækjandi hyggst vinna að meðan á dvöl stendur, að hámarki 200 orð.

Ef umsækjandi er ekki með heimasíðu, þá þarf hann að senda 4-5 myndir af nýlegum verkum sem hafa verið unnin síðastliðin 3 ár.

CV að hámarki ein A4 blaðsíða.

Best er að færa öll gögn á eitt skjal á Pfd formi

Aðeins er tekið við umsóknum í tölvupósti. 

The post Óskað eftir umsóknum í tilraunaverkefni SÍM 2017 appeared first on sím.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 4356