Hjartanlega velkomin á opnun myndlistarsýningarinnar Brjóstdropar í Nesstofu, Seltjarnarnesi, föstudaginn 3. júní kl. 18. Þar sýna saman þær Anna Jóa, Bryndís Jónsdóttir, Guðbjörg Lind Jónsdóttir, Hildur Margrétardóttir, Hlíf Ásgrímsdóttir, Kristín Geirsdóttir, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá og Ólöf Oddgeirsdóttir. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Sýningunni er ætlað að hverfast um hið sérstæða hús Nesstofu, sögu þess og náttúrulegt umhverfi. Heiti sýningarinnar, Brjóstdropar, vísar í heilnæmt sjávarloftið og andrúm lækningameðala og aðhlynningar sem umlykur húsið. Þá er skírskotað til þeirrar andlegu næringar og hollustu sem sækja má til listarinnar og sýningarhópurinn – hópur kvenna – vonast til að blása öðrum í brjóst með sýningunni.
Rekstur sýningarinnar er samstarfsverkefni Þjóðminjasafns Íslands og Seltjarnarnesbæjar. Nesstofa verður opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17 á sýningartímabilinu frá 3. júní til 31. ágúst 2016.
The post Brjóstdropar í Nesstofu appeared first on sím.